Í Morgunblaðinu í dag er birt frétt um að Matvælastofnun (MAST) kunni að hafa afhent hryðjuverkasamtökum Watsons skýrslur sem veiti upplýsingar um staðsetningu hvalveiðibáta við landið. Þessi samtök hafa lýst yfir því að þau séu komin á miðin við Ísland til að fremja refsiverð brot á þeim útgerðum sem stunda hér hvalveiðar en heimildir til þeirra byggjast á íslenskum lögum. Hafa þessir ofstækismenn áður framið hryðjuverk hér á landi t.d. með því að sökkva hvalveiðibátum. Það er eins og fyrirsvarsmönnum MAST hafi vafist tunga um tönn þegar þeir hafa verið spurðir um réttmæti þessara upplýsinga. Þjóðin á tvímælalausan rétt til að fá þessar upplýsingar tafarlaust. Hafi þessi íslenska stofnun gert þetta ber stjórnvöldum að grípa í taumana. Verður ekki betur séð en skylt sé að víkja þeim starfsmönnum úr starfi sem beri ábyrgð á þessari háttsemi.
Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur