Bókin mín „Í krafti sannfæringar“ kom út haustið 2014. Óhætt er að segja að bókin hafi fengið góðar viðtökur hjá flestum þeim sem gagnrýna útgefnar bækur hér á landi.
Þannig skrifaði Baldur Hermannsson grein í Morgunblaðið hinn 22. október 2014 þar sem hann sagði m.a: „Í krafti sannfæringar er skemmtilegasta ævisaga sem ég hef lesið.“ Hann skrifaði líka: „Jón Steinar er glimrandi rithöfundur og þeirri gáfu gæddur að skrifa eins og henn talar og þar sem hann þykir með glaðværustu mönnum og spaugsamur vel verður frásögnin sprelllifandi og spennandi, þótt viðfangsefnin séu raunar allt annað en brosleg, því sakamál eru alltaf dapurleg og ekki bæta úr skák þær herfilegu brotalamir í dómskerfinu sem höfundur leiðir fram hverja af annarri og styður gildum rökum.“
Í ritinu Herðubreið skrifaði Karl Th. Birgisson ritdóm og gaf bókinni fjórar og hálfa stjörnu af fimm mögulegum.
Margir fleiri lögðu orð í belg og hvöttu þeir flestir aðra til að lesa bókina. Fyrsta upplag hennar seldist fljótlega upp og voru þá gefnar út fleiri bækur. Þær kláruðust líka hratt og örugglega og hef ég eftir það orðið að synja mörgum beiðnum um bókina.
Núna á haustdögum hef ég látið prenta 50 eintök af þessari bók. Hafi einhver áhuga á að eignast hana getur hann sent mér skilaboð á Fasbók og sótt svo bókina til mín. Bókina get ég áritað til nýrra eigenda sé þess óskað.
Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur