Pabbi

Í dag eru 107 ár frá liðin fæðingu föður míns, en hann fæddist 10. nóvember 1919. Síðustu áratugina starfaði hann sem leigubílstjóri, en hann dó 3. júní 1979. Á árinu 2014 kom í ljós með vísindalegum rannsóknum að faðir hans var Guðbjörn Hansson, en ekki Ólafur Þórarinsson eiginmaður ömmu minnar, Þorgerðar Vilhelmínu Gunnarsdóttur. Guðbjörn starfaði síðari hluta ævi sinnar sem yfirvarðstjóri í lögreglunni í Reykjavík. Hann andaðist í desember 1978 og hittust þeir feðgar því aldrei.

Pabbi og móðir mín, Ingibjörg Margrét Jónsdóttir, eignuðust 4 börn, Gretti (f. 1945), mig (f. 1947), Ingibjörgu (f. 1958, látin 1960) og Ingibjörgu Margréti (f. 1961).

Pabbi var einstaklega réttsýnn og heiðarlegur maður. Ég held að við systkinin höfum fengið afar verðmæta eiginleika frá honum og móður okkar. Ég man vel eftir samtali mínu við hann í maí 1979 þegar við ræddum um áfengismeðferð mína, sem þá var nýlega afstaðin, og hann kvaðst vilja feta í þau fótspor sjálfur. Þó að ekki gæti orðið að því er ég viss um að þetta samtal átti stóran þátt í því að ég hef ekki bragðað áfengi síðan.

Blessuð sé minning föður míns Gunnlaugs Guðbjörnssonar.

Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur