júní 2026

  • Þjónkun frekar en sparnaður

    Muna menn eftir því að við valdatöku núverandi ríkisstjórnar gaf hún út yfirlýsingu um að sparað yrði í ríkisrekstri m.a. með því að skera niður kostnað við óþarfa embættismenn? Þá voru hæstaréttardómarar 9 talsins. Sá fjöldi átti rót að rekja til þess ástands sem hafði ríkt fyrir stofnun Landsréttar en fyrir liggur að starfsálag á hvern sitjandi dómara í Hæstarétti minnkaði við stofnun Landsréttar 2018 í ca. 20% af því sem verið hafði. Reyndar var málum svo háttað að fyrir breytinguna var Hæstiréttur að dæma í u.þ.b. 750 málum á ári. Við breytinguna fækkaði dæmdum málum niður í 20-60 mál á ári.

    Þegar núverandi Landsréttur var stofnaður var dómurum við Hæstarétt einungis fækkað úr 9 í 7 þrátt fyrir ofangreindar staðreyndir, sem eru óumdeildar. Þeir höfðu verið 5 talsins mestan hluta 20. aldarinnar og var það meira en nóg til að sinna þeim málum sem dæma þurfti.

    Núverandi ríkisstjórn sagðist hafa uppi fyrirætlanir um að spara í ríkisrekstri, m.a. með því að fækka starfsmönnum ríkisstofnana. Ég birti blaðagrein og lagði til að dómurum við Hæstarétt yrði fækkað úr 7 í 5. Þar voru sjónarmið mín rækilega rökstudd. Ekki var liðinn sólarhringur frá myndun stjórnarinnar þegar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra birtist í fjölmiðlum til að segja að ekki kæmi til greina að fækka dómurum Hæstaréttar. Öllum var ljóst að þessi afstaða átt rót að rekja til þrýstings frá dómurunum sjálfum. Við skulum hafa í huga að fækkun dómaranna úr 7 í 5 myndi minnka möguleika lögfræðinga til að fá skipun í réttinn á næstu árum, þ.m.t. Þorbjargar Sigríðar.

    Ég vakti athygli á að Þorbjörg hafði um áratuga skeið starfað í dómskerfinu, lengst af sem saksóknari. Hún er því innvígð í lögfræðingahópinn sem þar vill öllu ráða, sbr. ummæli Benedikts Bogasonar forseta Hæstaréttar þegar hann var spurður um tillögur mínar.

    Fyrir liggur að fækkunin í réttinum myndi spara ríkissjóði háar fjárhæðir næstu árin. Það var hins vegar í þessu tilviki engin áhugi að nota upplagt tækifæri til að spara útgjöld. Ég skrifaði pistil þar sem bent var á þetta. Og núna koma fram upplýsingar um að dómararnir sinni umfangsmiklum öðrum störfum en dómsstörfunum í þágu ríkisins og þiggja fyrir það há viðbótarlaun. Hafa sumir þeirra meira að segja verið settir í störf hjá stofnunum ríkisins, sem þeim ber að sinna auk dómsstarfanna. Forseti réttarins hefur t.d. verið settur sem prófessor við lagadeild Háskóla Íslands. Dómarar við réttinn höfðu lengst af verið 5 á fyrstu áratugum í starfsemi hans, en hann hafði tekið til starfa á árinu 1918. Þá þótti við hæfi að þeir sinntu ekki öðrum störfum en dómsstörfunum. Þetta er einfalt dæmi um spillinguna í rekstri ríkisins. Ráðandi stjórnmálamenn eru svo aumir að þeir láta hagsmuni starfsmanna stjórna sér en ekki hagsmuni þjóðarinnar. Dæmigert Ísland.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur

  • Úr eftirmælum

    Fyrir nokkrum dögum birti ég á fasbókarsíðu minni kvæðið „Þá var ég ungur“ eftir snilldarskáldið Örn Arnarson. Margir brugðust við og létu í ljós aðdáun á þessu fallega kvæði. Það birtist fyrst í síðustu útgáfu ljóðabókarinnar Illgresi sem út kom rétt fyrir andlát Arnar árið 1942.

    Sú dýrmæta bók hefur inni að halda mörg önnur frábær kvæði eftir Örn. Hér kemur eitt þeirra „Úr eftirmælum“:

    ——-

    Hefur göngu æskan ör
    árla lífs á degi,
    sýnist ævin unaðsför
    eftir sléttum vegi,
    skilur ei, að kuldakjör
    koma á daginn megi.
    Haustsins þungu kröm og kör
    Kennir vorið eigi.

    Þreyta merkir hár og hár
    Hvítt er líður vorið.
    Sljóvgar auga tár og tár.
    Tæmist æskuþorið.
    Allir hljóta sár og sár,
    svo að þyngir sporið.
    Leggst við baggann ár og ár,
    uns menn fá ei borið.

    Mörgum þykir vel sé veitt,
    vinnist gullið bjarta,
    láta í búksorg ævi eytt,
    ágirndinni skarta.
    En þeir flytja ekki neitt
    yfir djúpið svarta.
    Þangað fylgir aðeins eitt:
    ást frá vinarhjarta.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur

  • Þá var ég ungur

    Er ekki ráð að mannfólkið beini stundum huganum að raunverulegum gildum í lífinu, fremur en að vera upptekið af þrasi daganna sem oftar en ekki snýst um hégóma og tildur en ekki það sem skiptir það mestu máli þegar allt kemur til alls?

    Sá sem skrifar þessar línur hefur lengi verið þeirrar skoðunar að traustasta samband í mannheimi, sem sjaldan brestur, sé samband móður og barns. Þegar ég og faðir minn sátum á kenderíi saman fyrir mörgum áratugum fórum við gjarnan með ljóð. Ljóðabókin Illgresi eftir Örn Arnarson var í uppáhaldi hjá okkur. Þar er margar ljóðaperlur að finna. Ein þeirra var í sérstöku uppáhaldi okkar. Ég held við höfum verið sammála um að fegurra ljóð hefði ekki verið samið á Íslandi. Hvað finnst þér lesandi góður?

    Mamma var fædd 3. júní 1923. Pabbi dó 3. júní 1979. Þessi dagur hefur því alltaf átt sérstakt sæti hjá mér.

    Skyggnumst aðeins um sviðið.

    ——-

    Hinn 12. desember 1884 ól Ingveldur Sigurðardóttir, þá 34 ára, son. Þetta gerðist á bænum Kverkártungu á Langanesströnd. Drengurinn var sjöunda barn hennar og eiginmannsins Stefáns Árnasonar. Hjónin bjuggu við lítil efni. Á harðindaárunum eftir 1880 svarf að þeim og þurftu þau snemma árs 1887 að bregða búi sakir fátæktar. Þau réðust sem vinnuhjú að Miðfirði. Eldri börnin urðu þau að láta frá sér en héldu drengnum. Hann hét Magnús. Stefán drukknaði vorið 1887 í Miðfjarðará þegar Magnús litli var tveggja ára gamall. Eftir það var hann í umsjá móður sinnar, sem varð nokkrum árum síðar bústýra á Þorvaldsstöðum í Miðfirði. Drengurinn þótti pasturslítill og var talinn latur til vinnu. Eina skjólið hans var móðirin sem unni honum og annaðist um hann í hörðum heiminum. Var hann hjá henni allt til þess að hann hélt til Reykjavíkur til náms um tvítugt.

    Ingveldur andaðist vorið1925. Líklega hefur henni þá ekki hugkvæmst að hún ætti eftir að lifa um ókomna tíð í hjarta þjóðarinnar sem táknmynd þess bands milli einstaklinga sem ekkert fær grandað, og verða þar í reynd ódauðleg.

    Magnús sonur hennar fékkst við kveðskap og kom yfirlætislaus ljóðabók hans Illgresi fyrst út á árinu 1924. Hann orti undir skáldanafninu Örn Arnarson. Það ódauðlega ljóð sem hann orti til móður sinnar varð ekki til fyrr en degi var tekið að halla í lífi hans sjálfs, en Magnús andaðist 1942. Það ár kom út ný útgáfa af Illgresi og var þar fyrst birt ljóðið „Þá var ég ungur“.

    Þetta ljóð er snilldarverk. Efni þess þarf ekki að lýsa. Það talar fyrir sig sjálft.

    ——-

    Hreppsómaga-hnokki
    hírðist inni á palli,
    ljós á húð og hár.
    Steig hjá lágum stokki
    stuttur brókarlalli,
    var svo vinafár.
    Líf hans var til fárra fiska metið.
    Furðanlegt, hvað strákurinn gat étið.
    Þú varst líknin, móðir mín,
    og mildin þín
    studdi mig fyrsta fetið.

    Mér varð margt að tárum,
    margt þó vekti kæti
    og hopp á hæli og tám.
    Þá var ég ungur að árum.
    En þau bölvuð læti,
    rumdi ellin rám.
    Það var eins og enginn trúa vildi,
    að annað mat í barnsins heimi gildi.
    Flúði ég til þín, móðir mín,
    því mildin þín
    grát og gleði skildi.

    Lonta í lækjar hyli,
    lóan úti í mónum,
    grasið grænt um svörð,
    fiskifluga á þili,
    fuglarnir á sjónum,
    himinn, haf og jörð –
    öll sú dásemd augu barnsins seiddi.
    Ótal getum fávís hugur leiddi.
    Spurði ég þig móðir mín,
    og mildin þín,
    allar gátur greiddi.

    Út við ystu sundin
    ást til hafsins felldi
    undi lengstum einn,
    leik og leiðslu bundinn.
    Lúinn heim að kveldi
    labbar lítill sveinn.
    Það var svo ljúft, því lýsir engin tunga,
    af litlum herðum tókstu dagsins þunga.
    Hvarf ég til þín móðir mín,
    og mildin þín
    svæfði soninn unga.

    Verki skyldu valda
    veikar barnahendur.
    Annir kölluðu að.
    Hugurinn kaus að halda
    heim á draumalendur,
    gleymdi stund og stað.
    „Nóg er letin, áhuginn er enginn“.
    Ungir og gamlir tóku í sama strenginn,
    allir nema móðir mín,
    því mildin þín
    þekkti dreymna drenginn.

    Heyrði ég í hljóði
    hljóma í svefni og vöku
    eitthvert undralag.
    Leitaði að ljóði,
    lærði að smíða stöku
    og kveða kíminn brag.
    Ekki jók það álit mitt né hróður.
    Engum þótti kveðskapurinn góður.
    Þú varst skjólið, móðir mín,
    því mildin þín
    vermdi þann veika gróður.

    Lífsins kynngi kallar.
    Kolbítarnir rísa
    upp úr öskustó.
    Opnast gáttir allar,
    óskastjörnur lýsa
    leið um lönd og sjó.
    Suma skorti verjur og vopn að hæfi,
    þótt veganestið móðurhjartað gæfi.
    Hvarf ég frá þér móðir mín,
    en mildin þín
    fylgdi mér alla ævi.

    Nú er ég aldinn að árum.
    Um sig meinin grafa.
    Senn er sólarlag.
    Svíður í gömlum sárum.
    Samt er gaman að hafa
    lifað svo langan dag.
    Er syrtir af nótt, til sængur er mál að ganga,
    sæt mun hvíldin eftir vegferð stranga
    þá vildi ég móðir mín,
    að mildin þín
    svæfði mig svefninum langa.

    ——-

    Magnús Stefánsson hlaut ekki mikinn veraldlegan frama meðan hann lifði. Nafn hans mun hins vegar lifa með ljóðum hans um ókomna tíð. Og Ingveldur Sigurðardóttir mun lifa sem táknmynd þeirra tengsla mannlífsins sem aldrei bregðast.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur