Kári Stefánsson er undarlegur maður. Hann berst gegn því að áfengi sé selt í verslunum sem það vilja selja. Fallast má það með honum að dómsmálaráðherra beri að fara að lögum, þ.m.t. lögum og dómsniðurstöðu sem hafa talið þessa sölu ólöglega eins og staðið hefur verið að henni. Það er reyndar frekar undarlegt að svo skuli vera því áfengi er selt á löglega hverju götuhorni hér á landi á veitingastöðum og í krám. Menn geta hvarvetna gengið inn á slíka sölustaði og keypt sér áfengi.
Afstaða Kára virðist helst ráðast af því að hann er sósíalisti sem er andvígur frjálsri athafnasemi einstaklinga. Dómsmálaráðherra ætti, öndvert við málflutning Kára, að bregðast við ástandinu með því að fella úr gildi allar hömlur á sölu þessarar neysluvöru. Hún er ekkert frábrugðin sölu á annarri vöru, þ.m.t. á stöðum sem, eins og að framan segir, selja hana hverjum sem vill kaupa. Viðhorf Kára helgast af forræðishyggju hans og er eins og ómur úr fortíðinni.
Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur