Fíkniefnabannið

Að kvöldi þriðjudagsins 14. apríl var sýndur í sjónvarpi RÚV þáttur um fíkniefni og vaxandi neyslu þeirra hér á landi. Á árinu 2014 kom út bók mín „Í krafti sannfæringar“. Þar er að finna eftirfarandi kafla um fíkniefni:

„Segja má að viðhorf þeirra sem vilja leysa vandamál með boðum og bönnum fremur en frelsi og ábyrgð hafi á ýmsum sviðum mannlífsins orðið ofaná. Gott dæmi um þetta er fíkniefnabannið. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að þar séum við á rangri braut. Þar er að mínum dómi farsælast, eins og á öðrum sviðum, að ætla mannfólkinu frelsi og láta það sjálft bera ábyrgð á gjörðum sínum. Einstaklingar hljóta sjálfir að eiga að ráða því hvers þeir neyta. Ef neyslan er skaðleg verða þeir fyrir sjálfir. Kannski er stærsta þversögnin í stefnunni í fíkniefnamálum fólgin í því að við leyfum neyslu vímugjafa sem við fína fólkið viljum neyta, áfengisins. Fari menn sér að voða við neyslu þess fara þeir „í meðferð“. Meðferðin felst í því að láta menn taka ábyrgð á eigin lífi. Hvers vegna gerum við ekki það sama við aðra vímugjafa en áfengi?

Það er ekki nóg með að vestræn ríki hafi rekið bann- og refsistefnu gegn fíkniefnum. Þau hafa beinlínis háð stríð gegn dreifingu þeirra og neyslu. Bandaríkjamenn kalla þetta fíkniefnastríð (e. War on drugs). Í því stríði láta ófáir lífið á hverju ári, bæði þeir sem dreifa efnunum og einnig þeir sem neyta þeirra. Og ekkert gengur. Neyslan hefur stöðugt aukist síðustu áratugina.

Lítum á nokkrar óumdeildar staðreyndir sem varða það ástand sem stefna okkar í fíkniefnamálum hefur alið af sér. Með henni höfum við búið til neðanjarðarheim, þar sem glæpamenn sitja við stjórnvölinn. Við höldum í þeim lífinu með banninu. Í þessum heimi ræður ofbeldið ríkjum. Þeir sem fyrir því verða þora ekki einu sinni að kæra ofbeldisverkin af ótta við ofbeldismennina. Við meðhöndlum þá sem ánetjast efnunum eins og glæpamenn en ekki sjúklinga eins og rétt væri. Stundum geta þetta verið börnin okkar. Ef þau leiðast út í neyslu leiðir það oft til þátttöku þeirra í ólögmætri dreifingu efnanna. Stundum taka þau að sér að vera „burðardýr“ fíkniefna milli landa til þess að eiga fyrir neyslunni. Þá er nú okkur fína fólkinu að mæta. Við sendum þau í fangelsi. Með því erum við oftast í reynd að dæma þau varanlega út úr samfélagi okkar. Þau fara á sakaskrá og eiga erfitt uppdráttar í lífinu, jafnvel þó að þau hafi náð tökum á fíkniefnaneyslunni.

Margir sem til þekkja í heimi fíkniefnanna segja að auðveldara sé að nálgast þessi efni en áfengi. Þau megi kaupa á götuhornum og skemmtistöðum. Jafnvel séu skólalóðir vettvangur viðskiptanna. Einnig er augljóst að efnin, sem seld eru í þessu neðanjarðarkerfi, eru oft miklu hættulegri en vera myndi ef dreifing yrði með einhverjum hætti leyfð. Glæpamennirnir sem dreifa þeim hika þannig oft ekki við að bæta í þau öðrum efnum til að drýgja söluvöruna og auka hagnaðinn. Síðan leiðast neytendur út í afbrot til að fjármagna neyslu sína. Strákar brjótast inn og stela og stelpur selja sig.

Satt að segja er alveg ótrúlegt hversu illa gengur að fá fólk til að opna augun fyrir öllum þessum staðreyndum sem hrópa á okkur. Það er eins og menn eigi erfitt með að átta sig á því að haldbesta leiðin í þessu efni, eins og svo mörgum öðrum, er að fólk taki ábyrgð á sjálfu sér. Vanmáttur manna gegn fíkninni hjá öðrum leiðir til örþrifaráða – bannreglna og þungra refsinga. Með því finnst mönnum að þeir séu að „gera eitthvað í málinu“. Það má til sanns vegar færa. Aðgerðir þeirra auka hins vegar á bölið en draga ekki úr því. Þar tala allar staðreyndir sínu máli.

Við ættum því að hugsa málið upp á nýtt. Opnum þennan fíkniefnaheim og kippum þannig fótunum undan starfsemi glæpahópanna sem nærast í honum. Meðhöndlum fíklana sem sjúklinga en ekki glæpamenn. Greiðum þeim leið til betra lífs. Ég fullyrði að þannig næðu þeir fyrr tökum á vanda sínum. Síðan ættu menn að hugsa um kostnaðinn sem fylgir þessari bann- og refsistefnu, til dæmis af löggæslunni. Konan mín hefur haft þann sið á „fasbókarsíðu“ sinni undanfarin ár að merkja alls kyns glæpafréttir úr fjölmiðlum með orðunum „í boði fíkniefnabannsins“. Þar er þá ávallt um fréttir að ræða af hörmungum og glæpaverkum sem má vafalaust rekja beint til þessarar vonlausu baráttu við vindmyllurnar.

Þegar þetta er skrifað á útmánuðum 2014 sér þess merki að stjórnmálamenn séu farnir að átta sig á því hversu skaðleg og röng opinber stefna í fíkniefnamálum hefur verið. Meðal annars hafa þingmenn úr öllum flokkur flutt saman tillögu til þingsályktunar um skipun nefndar til að huga að breytingum á löggjöf sem um þetta fjallar. Er ekkert nema gott um þetta að segja.“

Þessa afstöðu hafði ég fyrst birt opinberlega mörgum árum áður. Minnir mig að það hafi verið um aldamótin eða jafnvel fyrr. Mér finnst tilefni til rifja þessa umfjöllun mína upp núna þegar fleiri virðast hafa áttað sig á þessum augljósu staðreyndum nú en áður.

Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur