apríl 2026

  • Fíkniefnabannið

    Að kvöldi þriðjudagsins 14. apríl var sýndur í sjónvarpi RÚV þáttur um fíkniefni og vaxandi neyslu þeirra hér á landi. Á árinu 2014 kom út bók mín „Í krafti sannfæringar“. Þar er að finna eftirfarandi kafla um fíkniefni:

    „Segja má að viðhorf þeirra sem vilja leysa vandamál með boðum og bönnum fremur en frelsi og ábyrgð hafi á ýmsum sviðum mannlífsins orðið ofaná. Gott dæmi um þetta er fíkniefnabannið. Ég hef lengi verið þeirrar skoðunar að þar séum við á rangri braut. Þar er að mínum dómi farsælast, eins og á öðrum sviðum, að ætla mannfólkinu frelsi og láta það sjálft bera ábyrgð á gjörðum sínum. Einstaklingar hljóta sjálfir að eiga að ráða því hvers þeir neyta. Ef neyslan er skaðleg verða þeir fyrir sjálfir. Kannski er stærsta þversögnin í stefnunni í fíkniefnamálum fólgin í því að við leyfum neyslu vímugjafa sem við fína fólkið viljum neyta, áfengisins. Fari menn sér að voða við neyslu þess fara þeir „í meðferð“. Meðferðin felst í því að láta menn taka ábyrgð á eigin lífi. Hvers vegna gerum við ekki það sama við aðra vímugjafa en áfengi?

    Það er ekki nóg með að vestræn ríki hafi rekið bann- og refsistefnu gegn fíkniefnum. Þau hafa beinlínis háð stríð gegn dreifingu þeirra og neyslu. Bandaríkjamenn kalla þetta fíkniefnastríð (e. War on drugs). Í því stríði láta ófáir lífið á hverju ári, bæði þeir sem dreifa efnunum og einnig þeir sem neyta þeirra. Og ekkert gengur. Neyslan hefur stöðugt aukist síðustu áratugina.

    Lítum á nokkrar óumdeildar staðreyndir sem varða það ástand sem stefna okkar í fíkniefnamálum hefur alið af sér. Með henni höfum við búið til neðanjarðarheim, þar sem glæpamenn sitja við stjórnvölinn. Við höldum í þeim lífinu með banninu. Í þessum heimi ræður ofbeldið ríkjum. Þeir sem fyrir því verða þora ekki einu sinni að kæra ofbeldisverkin af ótta við ofbeldismennina. Við meðhöndlum þá sem ánetjast efnunum eins og glæpamenn en ekki sjúklinga eins og rétt væri. Stundum geta þetta verið börnin okkar. Ef þau leiðast út í neyslu leiðir það oft til þátttöku þeirra í ólögmætri dreifingu efnanna. Stundum taka þau að sér að vera „burðardýr“ fíkniefna milli landa til þess að eiga fyrir neyslunni. Þá er nú okkur fína fólkinu að mæta. Við sendum þau í fangelsi. Með því erum við oftast í reynd að dæma þau varanlega út úr samfélagi okkar. Þau fara á sakaskrá og eiga erfitt uppdráttar í lífinu, jafnvel þó að þau hafi náð tökum á fíkniefnaneyslunni.

    Margir sem til þekkja í heimi fíkniefnanna segja að auðveldara sé að nálgast þessi efni en áfengi. Þau megi kaupa á götuhornum og skemmtistöðum. Jafnvel séu skólalóðir vettvangur viðskiptanna. Einnig er augljóst að efnin, sem seld eru í þessu neðanjarðarkerfi, eru oft miklu hættulegri en vera myndi ef dreifing yrði með einhverjum hætti leyfð. Glæpamennirnir sem dreifa þeim hika þannig oft ekki við að bæta í þau öðrum efnum til að drýgja söluvöruna og auka hagnaðinn. Síðan leiðast neytendur út í afbrot til að fjármagna neyslu sína. Strákar brjótast inn og stela og stelpur selja sig.

    Satt að segja er alveg ótrúlegt hversu illa gengur að fá fólk til að opna augun fyrir öllum þessum staðreyndum sem hrópa á okkur. Það er eins og menn eigi erfitt með að átta sig á því að haldbesta leiðin í þessu efni, eins og svo mörgum öðrum, er að fólk taki ábyrgð á sjálfu sér. Vanmáttur manna gegn fíkninni hjá öðrum leiðir til örþrifaráða – bannreglna og þungra refsinga. Með því finnst mönnum að þeir séu að „gera eitthvað í málinu“. Það má til sanns vegar færa. Aðgerðir þeirra auka hins vegar á bölið en draga ekki úr því. Þar tala allar staðreyndir sínu máli.

    Við ættum því að hugsa málið upp á nýtt. Opnum þennan fíkniefnaheim og kippum þannig fótunum undan starfsemi glæpahópanna sem nærast í honum. Meðhöndlum fíklana sem sjúklinga en ekki glæpamenn. Greiðum þeim leið til betra lífs. Ég fullyrði að þannig næðu þeir fyrr tökum á vanda sínum. Síðan ættu menn að hugsa um kostnaðinn sem fylgir þessari bann- og refsistefnu, til dæmis af löggæslunni. Konan mín hefur haft þann sið á „fasbókarsíðu“ sinni undanfarin ár að merkja alls kyns glæpafréttir úr fjölmiðlum með orðunum „í boði fíkniefnabannsins“. Þar er þá ávallt um fréttir að ræða af hörmungum og glæpaverkum sem má vafalaust rekja beint til þessarar vonlausu baráttu við vindmyllurnar.

    Þegar þetta er skrifað á útmánuðum 2014 sér þess merki að stjórnmálamenn séu farnir að átta sig á því hversu skaðleg og röng opinber stefna í fíkniefnamálum hefur verið. Meðal annars hafa þingmenn úr öllum flokkur flutt saman tillögu til þingsályktunar um skipun nefndar til að huga að breytingum á löggjöf sem um þetta fjallar. Er ekkert nema gott um þetta að segja.“

    Þessa afstöðu hafði ég fyrst birt opinberlega mörgum árum áður. Minnir mig að það hafi verið um aldamótin eða jafnvel fyrr. Mér finnst tilefni til rifja þessa umfjöllun mína upp núna þegar fleiri virðast hafa áttað sig á þessum augljósu staðreyndum nú en áður.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur

  • Virðing fyrir öðru fólki

    Að undanförnu hef ég birt stutta pistla hér á Fasbókinni, þar sem vikið er að nokkrum atriðum sem ég tel hafa þýðingu fyrir okkur öll sem viljum lifa eftir gildum sem vil skiljum að ráði hamingju okkar í sjálfu lífshlaupinu.

    Það er líka sérstaklega ástæða til að nefna þátt sem að mínum dómi er óaðskiljanlegur hluti af þeirri lífsskoðun sem hér efur verið lýst.  Það er virðing fyrir öðru fólki og skilyrðislaus viðurkenning á rétti þess til að haga sínu eigin lífi á þann hátt sem það sjálft kýs svo lengi sem það skaðar ekki aðra. Mannfólkið er fjölbreytilegt og einstakir menn hafa mismunandi kenndir, hvatir og langanir í lífinu. Allir eiga þar að mínum dómi sama rétt. Ekkert okkar hefur heimild til að sitja yfir hlut annarra með því að bjóða og banna, eins og svo margir vilja sífellt gera. Sumir vilja flokka mannfólkið eftir þjóðerni, litarhætti, trúarbrögðum, kynferði, kynhneigð, gáfum eða hverju því öðru sem greinir einn mann frá öðrum og láta menn njóta misjafns réttar eftir því hverjum þessara „flokka“ þeir tilheyra. Til þess hafa menn yfirleitt enga heimild af þeirri einföldu ástæðu að einn á ekki að ráða neinu um einkahagi annars. Svo einfalt er það.

    Svo er annar eiginleiki sem oft skiptir sköpum í samskiptum milli manna af því að hann er oft nauðsynlegur til að geta haldið vináttu og góðum tengslum á lífi. Þetta er hæfileikinn til að geta beðist afsökunar. Enginn maður kemst hjá því að segja einhvern tíma eða gera eitthvað sem meiðir eða særir annan, jafnvel góðan vin. Hafi maður gert þetta og síðan komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið farið fram af fullri sanngirni gagnvart þeim sem orðum var beint að, tilheyrir það að mínum dómi siðferðislegri skyldu að biðja viðkomandi afsökunar. Stundum hef ég verið of fljótur til að beina skeytum að öðrum án þess að sýna nauðsynlega sanngirni. Ég tel mig í slíkum tilvikum oftast hafa reynt að bæta ráð mitt, ræða málið við þann sem í hlut á og biðja hann afsökunar á frumhlaupinu. Það er regla frekar en undantekning að hrein samskipti af þessu tagi treysti vináttu og gott samband milli manna fremur en að spilla því. Ég hef líka orðið vitni að því að skorturinn á þessum hæfileika hefur leitt af sér sambandsleysi og jafnvel vinslit, sem auðveldlega mátti komast hjá.

    Óæskileg forsjá

    Að mínu áliti skiptir það sköpum fyrir velferð og hamingju manna að njóta frelsis til að stjórna eigin lífi og taka ákvarðanir um hagi sjálfs sín. Þessu verður að fylgja ábyrgð þess manns sjálfs sem í hlut á. Það er lykilatriði. Í samfélagi mannanna er auðvelt að greina alls kyns vandamál, sem einstaklingar og hópar þeirra eiga við að stríða. Úrræði margra felast í að vilja taka á vandanum með opinberum afskiptum og forsjá sem fela í sér skerðingu á athafnafrelsi borgara almennt og krefst skattheimtu og þeirrar takmarkana á sjálfsforræði borgara sem henni fylgir. Settar eru boð- og bannreglur um alls kyns mannlega breytni og refsing lögð við ef menn fylgja ekki hinni opinberu forskrift. Stundum er eftirlitsstofnunum hins opinbera komið á fót til að gæta að því að menn fari eftir fyrirmælum og tryggja að þeir verði lögsóttir sem ekki hlýða. Þá eru tíðum settar lagareglur sem fela í sér beinan eða óbeinan tilflutning fjármuna á milli borgaranna. Þessi forsjá er að mínum dómi afar óæskileg og gerir ekki annað en að ræna menn ábyrgðinni á sjálfum sér sem er svo bráðnauðsynleg fyrir lífshlaup okkar og hamingju.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur

  • Grunnviðhorf

    Setjum okkur í svolítið hátíðlegar stellingar og veltum fyrir okkur grundvellinum fyrir því samfélagi sem við öll erum í við annað fólk. Erum við ekki sjálf grunneiningin? Við höfum auðvitað aldrei verið beðin um að semja okkur inn í samfélag við aðra. Flest teljum við samt að okkur beri siðferðileg skylda til þátttöku í slíku samfélagi. Ástæðan er nábýlið við aðra og óhjákvæmileg sameiginleg viðfangsefni okkar og þeirra. Þess vegna beygjum við okkur flest undir að teljast þátttakendur í sameiginlegu skipulagi með öðru fólki.

    Þetta skipulag hefur þróast með ýmsum hætti, til dæmis hafa myndast einingar sem samanstanda af þeim einstaklingum sem byggja ákveðin og skilgreind landsvæði. Þeir mynda saman það sem við köllum ríki og setja sér þar reglur um sambúð sína innan endimarka þess. Við gerum fæst miklar athugasemdir við þetta.

    Meginhugmyndin hlýtur samt að vera sú að einstaklingurinn í slíku samfélagi sé grunneiningin. Hann verður ekki til fyrir samfélagið, heldur er samfélagið til fyrir hann og til að þjóna einstaklingsbundnum þörfum hans. Þessi hugsun mótar þýðingarmikil grunnviðhorf í stjórnskipun okkar og lögum. Til dæmis er það almenn meginregla í okkar réttarkerfi að frelsi manna til orða og athafna eigi helst ekki að takmarkast af öðru en réttindum annarra. Við teljum líka þá meginreglu gilda að setta lagaheimild þurfi til að skerða frelsi einstaklinga og jafnvel að slík heimild dugi ekki til ef skert eru réttindi sem njóta ríkari verndar samkvæmt sérstökum ákvæðum sem við höfum sett í stjórnlög okkar þar að lútandi. Ég tel að miklu máli skipti fyrir þá sem starfa að úrlausn mála í réttarkerfinu að átta sig vel á þessum hugmyndagrundvelli stjórnskipunarinnar.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur

  • Það sem er rétt

    Í gær (7. apríl) birti ég hér á síðunni hugleiðingu um endurminningu sem mér
    finnst að hafi skipt meginmáli fyrir myndun þeirra skoðana í stjórnmálum og
    raunar um æskilega hætti í daglegu lífi manna sem ég síðan hef haft.
    Niðurstaðan er líklega sú að fáir sem hlýddu á erindi mín hafi munað mikið af
    því sem sagt var, þannig að það entist þeim. Það gerði líklega aðeins sá sem
    talaði! Ég held að málum sé oft svona farið. Til dæmis græddi ég mikið á því að
    kenna við háskólana og fólst það ekki síst í þeirri vinnu sem ég lagði í
    undirbúninginn. Vonandi hefur eitthvað líka setið eftir hjá nemendunum.
    Kennsla hefur að mínu mati fyrst og fremst þann tilgang að vekja áhuga
    nemenda á viðfangsefninu þannig að þeir verði tilbúnir til að leggja sig sjálfir
    eftir námsefninu.
    Það er að mínum dómi afar mikils virði fyrir einstaklinga að tileinka sér það
    sem við stundum köllum lífsskoðun. Þá á ég við afstöðu til lífsins sem ræðst af
    grunnhugmyndum um hvað sé skynsamlegt og hvað leiði til mests velfarnaðar í
    lífi einstaklinga en þó kannski umfram allt hvað teljist vera rétt og hvað rangt út
    frá málefnalegum sjónarmiðum eingöngu og þeim siðferðislegu og lagalegu
    viðhorfum sem viðkomandi hefur. Þegar tekin er afstaða til mála verða menn að
    skilja að hagsmunir, sem þeir sjálfir kunna að hafa eða hafa samúð með, mega
    ekki valda frávikum frá því sem rétt er samkvæmt þeim meginsjónarmiðum sem
    þeir hafa tileinkað sér og sett í öndvegi í lífi sínu.
    Í skáldsögunni Undirstaðan, eftir þann merka höfund Ayn Rand, sagði frá
    tveimur tíu ára börnum tala saman um hvað þau hygðust gera í lífinu. Annað
    þeirra, drengur, svaraði spurningu um hvað hann ætlaði að gera með orðunum.
    „Það sem er rétt.“ Ekki flókið!

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur

  • Hugmyndafræði

    Öllum mönnum er hollt að leggja sig eftir hugmyndafræði í stjórnmálunum vegna þess að hugmyndir manna um grundvöll samlífs með öðru fólki eru til þess fallnar að gefa lífshlaupi þeirra aukið gildi og færa þeim lífsgleði og hamingju. Mínar hugsanir féllu fljótlega í þann farveg, að ég taldi frelsi einstaklinga með ríka ábyrgð á eigin lífi eiga að vera sú undirstaða sem líf mitt skyldi byggjast á.

    Í þeim meginatriðum í lífsskoðun minni, sem ég hef reynt að hafa sem leiðarvísi í lífi mínu er að finna ýmislegt sem ég hef reynt að prédika í skrifum mínum gegnum árin. Kannski einhver vilji kynna sér þetta og jafnvel nýta sér eitthvað af því sjálfur.

    Þegar ég horfi til baka skynja ég að strax innan við tvítugt hafði ég eignast þá sannfæringu um meginatriði í lífinu sem ég hef reynt að halda síðan. Á þeim árum var ég stundum fenginn til að flytja erindi um hugmyndafræði sem verðugt væri að lifa eftir. Þá las ég mikið í ritum um stjórnmálaheimspeki. Þetta átti eftir að móta afstöðu mína og hugsjónir.

    Þegar ég les núna erindi sem ég flutti og voru birt opinberlega má vera að mér finnist þau vera ungæðisleg á köflum. En hugsunin sem þar birtist var heiðarleg og hrein. Meginboðskapurinn er sá að þær grunnhugmyndir sem standa að baki lýðræðislegu stjórnkerfi eigi líka við í daglegu lífi manna. Þeir eigi þannig ekki aðeins að fá aðild að landsstjórninni með kosningarétti sínum heldur einnig að fá að ráða sínum eigin málefnum í ríkum mæli og virða rétt annarra til hins sama.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur