október 2026

  • Villigötur valdsins

    Komin er út bók eftir Óla Björn Kárason, „Villigötur valdsins“, sem allir áhugamenn um stjórnmál ættu að lesa. Í bókinni fjallar höfundur um að stærsta verkefni hægri manna á komandi árum felist í að að setja baráttu hugmynda aftur í forgang, þar sem grunnurinn sé sjálfstæði landsins, frjáls utanríkisviðskipti og frelsi einstaklinganna. Berjast verði fyrir opnu samfélagi og gegnsæi í allri opinberri stjórnsýslu og standa vörð um réttindi einstaklinga til orðs og æðis. Varðstaðan um þessi gildi verði ekki staðin með því að setja hugsjónir út í horn og eiga huggulegar samræður um tæknilegar útfærslur.

    Óli Björn telur að þessi gildi hafi látið undan síga á undanförnum árum fyrir viðleitni um stjórnlyndi á mörgum, jafnvel flestum, sviðum með þeim afleiðingum að þjóðin búi við verri lífskjör en vera myndi ef frelsi og einkaframtak einstaklinga og samtaka þeirra fengi að njóta sín í ríkara mæli en verið hefur. Nefnir hann fjölmörg dæmi um að grunngildi frelsisins hafi orðið að láta undan síga fyrir stjórnlyndinu, sem jafnvel flestir áhrifavaldar hafi byggt á í framkvæmd.

    Ég tel að sem flestir Íslendingar eigi ekki bara að lesa þessa frábæru bók heldur einnig að leitast við að tileinka sér þann boðskap sem hún flytur.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur

  • Krafa um frávísun

    Í Mogganum 16.10. er að finna grein um væntanlegar varnir Íslands í bókunarmálinu, sem Eftirlitsstofnun Efta hefur höfðað gegn Íslandi. Aðalvörnin hlýtur að verða sú að krefjast frávísunar. Þá kröfu þyrfti eftir réttarfarsreglum að fjalla sérstaklega um áður en fjalla þyrfti um efni málsins.

    Við innlenda og erlenda dómstóla er gert ráð fyrir heimild til slíks. Lítum á íslenskar lagareglur um þetta. Í íslenskum réttarfarslögum er kveðið á um það í 1. mgr. 100. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála að krefjist stefndi frávísunar máls í greinargerð, skuli málið flutt munnlega um þá kröfu áður en fjallað verður frekar um efni þess.

    Er stefnda í 2. mgr. 99. gr. heimilað að leggja fyrst í stað fram greinargerð með þessari kröfu án þess að fjalla að svo stöddu um kröfur sínar um efni málsins. Fallist dómari á þetta skal hann vísa málinu frá dómi. Sambærileg regla mun, eftir því sem ég best veit, gilda um aðra dómstóla. Tilgangur þessa fyrirkomulags um skiptingu sakarefnisins er auðvitað sá að spara efnismeðferðina ef vísa ber málinu frá dómi.

    Eftirlitsstofnun EFTA mun hafa höfðað mál gegn Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum með kröfu um að bókun 35 í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið verði tekin upp í íslenskan rétt. Ísland hefur byggt afstöðu sína til þessarar kröfu á því að hún standist ekki íslensku stjórnarskrána, þar sem hún feli það í sér að eldri efnisákvæði skuli samkvæmt bókuninni ganga fyrir yngri lögum sem Alþingi setur. Ljóst er að þessi krafa hlýtur að varða valdmörk EFTA-dómstólsins þar sem sá dómstóll hefur auðvitað ekki vald til að kveða á um efni íslensku stjórnarskráarinnar.

    Leiðir þetta til frávísunar málsins frá EFTA-dómstólnum og hlýtur frávísunarkrafan að eiga að koma til meðferðar áður en fjallað verður um efni málsins.

    Samkvæmt framansögðu ber Íslandi að gera þá aðalkröfu í þessu máli að því verði vísað frá dómstólnum. Það leiðir til niðurfellingar þess. Auk þessara röksemda mætti styðja frávísunarkröfuna með sjónarmiðum um að umrædd bókun hefði verið nýtt í yfir 30 ár til að kveikja aðgerðir sem styðjast við bókunina, án þess að hún hafi verið lögleidd hér á landi. Þess vegna séu ekki til staðar lögfræðileg rök fyrir lögleiðslu hennar og beri því að vísa henni frá dómi.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur

  • Lífið er einfalt

    Við meðferð mála fyrir dómi getur varnaraðili gert aðalkröfu um frávísun þess m.a. ef hann byggir þá kröfu á þeirri málsástæðu að viðkomandi dómstóll hafi ekki vald til að dæma um ágreininginn sem lagður hefur verið fyrir hann með málssókninni.

    Í íslenskum réttarfarslögum er þannig kveðið á um það í 1. mgr. 100. gr. laga nr 91/1991 um meðferð einkamála að krefjist stefndi frávísunar máls í greinargerð, skuli málið flutt munnlega um þá kröfu áður en fjallað verður frekar um efni þess. Er stefnda í 2. mgr. 99. gr heimilað að leggja fyrst í stað fram greinargerð með þessari kröfu án þess að fjalla að svo stöddu um kröfur sínar um efni málsins. Fallist dómari á þetta skal hann vísa málinu frá dómi. Sambærileg regla mun, eftir því sem ég best veit, gilda um aðra dómstóla. Ástæða fyrir þessu fyrirkomulagi um skiptingu sakarefnisins er auðvitað sú að spara efnismeðferðina ef vísa ber málinu frá dómi.

    Nú mun Eftirlitsstofnun EFTA hafa höfðað mál gegn Íslandi fyrir EFTA dómstólnum með kröfu um að bókun 35 í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið verði tekin upp í íslenskan rétt. Ísland hefur byggt afstöðu sína til þessarar kröfu á því að hún standist ekki íslensku stjórnarskrána, þar sem hún feli það í sér að eldri efnisákvæði skuli samkvæmt bókuninni ganga fyrir yngri lögum sem Alþingi setur. Ljóst er að þessi krafa hlýtur að varða valdmörk EFTA dómstólsins þar sem sá dómstóll hefur auðvitað ekki vald til að kveða á um efni íslensku stjórnarskráarinnar. Leiðir þetta til frávísunar málsins frá EFTA dómstólnum og hlýtur frávísunarkrafan eiga að koma til meðferðar áður en fjallað verður um efni málsins.

    Samkvæmt framansögðu ber Íslandi að gera þá aðalkröfu í þessu máli að því verði vísað frá dómstólnum. Það leiðir til niðurfellingar málsins. Sjáið hve lífið er einfalt.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur

  • Konur okkar

    Í gær setti ég inn lista yfir mörg æðstu embætti ríkisins sem skipuð eru konum. Það gerði ég vegna þess að mér þykir forvitnileg breytingin sem orðið hefur á fjölda kvenna í æðstu stjórn ríkisins. Þá var eins og ég hefði losað um stíflu því fjölmargir fundu hjá sér hvöt til að lýsa afstöðu sinni til efnisins. Margir létu í ljósi þá afstöðu til mín að ég væri andvígur þeirri þróun sem sýnilega hefur orðið á stöðu kvenna frá því sem áður var. Ekkert er fjær sanni. Mér finnst ekkert athugavert við skipun kvenna í þessar stöður. Ég er einlægur jafnréttissinni og tel að ekki eigi að gera kynferði embættismanna að efnisþætti við skipun í þessi embætti. Ég hef auðvitað eins og aðrir oft skoðun á frammistöðu einstakra embættismanna og gildir þá einu hvert kynferði þeirra er. Það skiptir ekki máli að mínum dómi. Einstakir embættismenn eiga einfaldlega að verða metnir af frammistöðu sinni í þessum embættum en ekki af kynferði sínu. Mér þótti þessi þróun athyglisverð svo greinileg sem hún er orðin. Engum leyfist hins vegar að gera mér upp skoðanir á þessu. Afstaða til einstakra embættismanna á að mínum dómi eingöngu að ráðast af frammistöðu þeirra í embættunum.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur

  • Konur við völd

    3 konur ráðandi í ríkisstjórn:

      Forsætisráðherra

      Utanríkisráðherra

      Menntamálaráðherra

    Dómsmálaráðherra

    Forseti Íslands

    Biskupinn

    Forseti Alþingis

    Formenn stjórnmálaflokka:

      Sjálfstæðisflokks

      Samfylkingar

      Viðreisnar

      Flokks fólksins

      Framsóknar

    Rektorar háskóla:

      Háskóla Íslands

      Háskólans í Reykjavík

      Háskólans á Bifröst

      Listaháskólans

      Háskólans á Akureyri

      Háskólans á Hólum

      Landbúnaðarháskólans

    Borgarstjórinn í Reykjavík

    Bæjarstjórinn í Kópavogi

    Vegamálastjóri

    Landlæknir

    Ríkislögreglustjóri

    Ríkissaksóknari

    Rektor Menntaskólans í Reykjavík

    Formaður BSRB

    Formaður VR

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur