Ég þurfti nýverið að leita til sérfræðilæknis. Hann gaf mér ákveðinn tíma á læknastofu sinni. Ég mætti á staðinn a.m.k. 10 mínútum fyrir tilsettan tíma og beið á biðstofu sem hann hafði ásamt fleiri læknum. Ekkert bólaði á mínum lækni fyrr en um 25 mínútum eftir boðaðan tíma. Ég fann að þessu loksins þegar ég fékk áheyrn hjá manninum. Hann tók því illa. Ég benti honum á að hann hefði getað látið starfsmann á stofunni óska eftir að ég biði lengur eða gefið mér nýjan tíma ef tafir við önnur störf yllu því að hann gæti ekki sinnt mér að sinni. Læknirinn brást illa við þessu og taldi mig sýna frekju með afstöðu minni. Hann hefði ekki fyrr heyrt slíkar kvartanir sjúklinga í svona tilviki. Ég svaraði honum með því að benda honum á að hann hefði sýnt mér dónaskap en ekki ég honum, þar sem hann hefði ekki sinnt mér fyrr en alllöngu eftir að tími minn var liðinn. Hann endurtók að hann hefði aldrei hafa heyrt sjúkling kvarta yfir svona framferði læknis. Vísaði hann mér svo á dyr án þess að sinna því læknisverki sem til stóð.
Það er ástæða til að hvetja fólk til að láta ekki lækna eða aðra biðstofumenn komast upp með svona ókurteisi. Þessi maður var hrokafullur og leit sýnilega þannig á sjálfan sig að honum væri allt heimilt í samskiptum við sjúklinga sína.
Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur