Ég skrifaði stuttan pistil hér á Fasbókina í gær um það atvik að ég þurfti að bíða á biðstofu læknis nokkuð fram yfir þann tíma sem hann hafði gefið mér. Margir lesendur merktu við skrif mín og vildu styðja sjónarmið mín í pistlinum. Við höfum nú talast við og komist að samkomulagi um að viðbrögð mín gagnvart honum hafi verið hvassari en verðugt var. Höfum við beðið hvor annan afsökunar á þessum árekstri. Mun hann halda áfram að sinna læknishjálp sinni við mig í sátt okkar á milli, eins og hann hefur gert með sóma um árabil. Þetta þykir mér rétt að taka fram vegna þeirra miklu viðbragða sem pistill minn fékk á Fasbókinni.
Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur