Hefndin

Í pistli mínum um efni bókarinnar um helförina var fjallað um glæpsamlega meðferð þýskra ráðamanna á Gyðingum á árum síðari heimsstyrjaldarinnar, þar sem þeir slátruðu Gyðingum í milljónavís. Morðæðið náði reyndar einnig til annarra hópa sem þýsku ofbeldismennirnir töldu ekki verðuga til lífs í ríki sínu.

Fyrir liggur að ennþá eru „starfandi“ hópar hryðjuverkamanna, eins og Hamas-liðar. sem segjast hafa það eina markmið að þurrka ríki Ísraels af yfirborði jarðar. Þeir gerðu vopnaða árás inn fyrir landamæri Ísraels haustið 2023 og myrtu þar og handtóku fjölda íbúa með skelfilegum hætti.

Við þessu hafa Ísraelsmenn brugðist með hervaldi. Að sögn Hamas-liða hafa þeir varpað yfir þá sprengjuregni sem heimsbyggðin hefur fordæmt, þar sem fyrir sprengjunum verða óbreyttir borgarar í stórum stíl sem ekkert hafa til saka unnið annað en að búa á landsvæði sem hryðjuverkamenn nota sem hlífðarskjöld. Hvort sem þetta er sönn frásögn eða ósönn er ljóst að heimsbyggðin hefur fordæmt Ísraelsmenn.

Ekki verður betur séð en að ríki Ísraels, sem stofnað var á árinu 1948, hafi lagt áherslu á að taka upp vestræna siði við skipulag og starfshætti sína. Til þess heyrir að refsa árásarmönnum með ákvörðunum dómstóla svo sem leitast var við að gera með hinum svonefndu Nurnberg-réttarhöldum að stríðinu loknu. Þar fengu ofbeldismenn réttarstöðu samborninga, þ.m.t. að færa fram varnir áður en dómar voru felldir.

Það er skoðun mín og margra fleiri manna að sterkasta vörn Ísraelsmanna við að verjast hryðjuverkum sé að halda fast við leikreglur réttarríkja og refsa einungis þeim sem nást til að leiða þá fyrir dóm. Sé gert ráð fyrir að fréttir af árásum þeirra á Gasa séu sannar skulum við hafa í huga að þeir hafa enga heimild til að haga hefnd sinni á þann hátt að saklausir borgarar „verði á milli“ og þurfi að líða sams konar hörmungar og Ísraelsmenn þurftu sjálfir að líða af hendi Þjóðverja á stríðsárunum. Sterkasta vörn Ísraelsmanna er að halda sig við að fylgja því lýðræðislega stjórnskipulagi sem þeir virðast hafa tekið upp í ríki sínu og fyrr var getið. Það er ekki tæk aðferð í hermdaraðgerðum þeirra að haga þeim þannig að fjöldi saklausra manna, þ.m.t. konur og börn, verði fórnarlömbin, hafi sú verið reyndin.

Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur