janúar 2026

  • Refsivarsla

    Almenningi hefur borist vitneskja um alvarlega afbrotastarfsemi uppá síðkastið. M.a. var upplýst að nýkjörinn alþingismaður hafi látið sér detta í hug fyrir 13 árum að sækja vændiskonu heim til að svala með henni þörfum sínum. Komst hann inn í andyrið á fjölbýlishúsinu sem konan bjó í en skorti kjark til að hringja á dyrabjöllu konunnar. Er þetta talið vera brot á siðareglum rétttrúnaðarsinna og varða afsögn af þingmennsku.

    Þá hefur komið í ljós nýverið að starfsmaður í kjötvinnslu hafi upp úr aldamótum látið sér detta í hug að taka lambalæri með sér úr vinnunni og eta það heima hjá sér. Ekkert varð úr þessu þar sem móðir hans bauð honum í mat þennan dag. Er þetta talið varða við reglur bænda um meðferð sláturhúsa á kindakjöti og viðurlög mannsins verið ákveðin með þvingun til fiskáts í heila viku.

    Þá hefur verið upplýst að starfandi bankastjóri hafi stuttu fyrir hrunið mikla árið 2008 látið sér detta í hug að taka nokkra seðla úr kassa gjaldkerans og nota féð til að kaupa sér rjómaís. Ekkert varð úr þessu þar sem eiginkona mannsins taldi að hann myndi fitna af því að eta ísinn. Hugdetta mannsins um þetta varðaði missi á bankastjórastöðunni og fluttist maðurinn þá í gjaldkerastarfið.

    Þessi alvarlega afbrotastarfsemi í landinu hefur hefur að undanförnu valdið slíku annríki hjá rannsóknarlögreglunni að starfsmenn hannar eru fjarri því að ná að sinna störfum sínum. Hefur dómsmálaráðherra óskað eftir aukafjárveitingu til að geta staðið undir kostnaði við refsiovörsluna. Bendir allt til þess að orðið verði við kröfunum um þetta til að reyna að ná höndum yfir afbrotin.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur

  • Erfið mál

    Kynferðisbrot reynast dómstólum oft erfið í meðförum. Í þeim felst inngrip í líf brotaþola sem árásarmaður hefur engan rétt til. Engin áhöld eru um að fyrir slík brot ber að refsa.

    Í íslenskum rétti, eins og í rétti allra annarra ríkja sem skyld eru okkur að menningu og lögum, er í refsirétti höfð í heiðri regla sem við öll könnumst við, reglan um sakleysi þar til sekt sannast. Í henni felst að við viljum frekar taka áhættuna á að sekur maður sleppi en að saklausum sé refsað. Það getur eyðilegt líf manns að verða dæmdur fyrir glæp sem hann ekki hefur framið. Slíkt viljum við flest umfram allt forðast.

    Erfið sönnunarstaða

    Líklega er sönnunarstaðan um sekt ekki jafnerfið í neinum brotaflokki eins og í flokki kynferðisbrota. Þetta stafar af því að kynmök, þar sem báðir aðilar eru samþykkir, er eðlilegur þáttur í mannlífinu. Ef annar aðilinn er sakaður um að hafa þvingað hinn til kynmaka en heldur því fram að mökin hafi farið fram að vilja beggja, vandast málið. Vera kann að sönnunargögnum sé til að dreifa um ofbeldið, þó að sakborningur neiti sök sinni. Séu þau nægileg til að upphefja vafa um sökina ber auðvitað að telja brotið hafa verið framið og kveða á um refsingu hins sakaða manns. Ef á hinn bóginn, eins og algengt er, að orð standi á móti orði og ekki er unnt að færa fram sönnunargögn um sökina, verður að sýkna. Vera kann að sá sem sýknaður er hafi framið brotið þó að sökin hafi ekki sannast. Sé það raunin er vitaskuld slæmt að hann skuli sleppa. Það eru hins vegar útgjöld sem við verðum að greiða í þágu þess markmiðs sem við flest viljum hafa í heiðri, að refsa ekki þeim sem er saklaus af glæp.

    Sanna þarf sökina

    Svo er annað einkenni á þessum flokki afbrota sem gerir hann oft frábrugðinn öðrum, en það er staða brotaþola. Yfirleitt finnst þeim sem kæra svona brot að þeir eigi persónulega mikið í húfi um að sakfellt sé. Það er vel skiljanlegt. Þessi aðstaða getur samt ekki að réttum lögum valdið því að slakað sé á kröfum um sönnun brots. Þetta verða menn að skilja. Hversu mjög sem þeir vilja fremur trúa kæranda en hinum sakaða, þá geta stofnanir réttarríkisins ekki beitt slíkum viðmiðunum. Það verður einfaldlega að sanna sökina þannig að hún sé hafin yfir skynsamlegan vafa. Þá verða menn að muna að ekki er nægilegt að sanna að mök hafi átt sér stað, heldur verður líka að gera kröfu til þess að hinum sakaða hafi mátt vera ljóst að hinn aðilinn hafi verið þeim andsnúinn.

    Saklausir fangelsaðir?

    Stundum virðist mega ráða af umræðum samfélagsins um þennan málaflokk að konur séu líklegri en karlar til að sakfella karlmenn sem sakaðir eru um að hafa nauðgað konu. Fjölga þurfi konum í dómarastétt til að fjölga sakfellingum! Þetta er undarlegur málflutningur og vonandi er ekkert til í honum, jafnvel þó að fræðimenn í refsirétti hafi heyrst halda þessu fram. Því veldur þá áreiðanlega einhvers konar jafnvægisleysi og hughrif frá fólki sem fer fram með málflutning í þessa veru. Dómari er dómari og hefur sömu starfsskyldur hvort sem hann er karl eða kona. Ég fullyrði líka og þykist hafa reynslu því til stuðnings, að karlmenn eru ekki síður en konur viljugir til að refsa ofbeldismönnum ef sök þeirra er sönnuð, hvort sem er í þessum málaflokki eða öðrum. Ég reyndar þekki til dómsmála í þessum flokki þar sem sakborningi hefur verið refsað (af karlkynsdómurum) þó að öllum sem um þinguðu hafi átt að vera ljóst að sökin hafi verið ósönnuð. Þar geta setið á sakarbekk ungir menn, sem verða þá að sæta þeim örlögum að sitja í fangelsi þó að allt eins sé líklegt að þeir hafi engan glæp framið. Slíkir hættir geta eyðilegt líf manna algerlega að ófyrirsynju. Þeir sem hæst hrópa um sakfellingar ættu að leiða hugann að örlögum slíkra manna.

    Hvað hefur sannast?

    Flestir dómarar eru sér vel meðvitaðir um að verkefni þeirra er ekki að svara því hvað gerst hafi í raun og veru í þeim tilvikum sem fyrir þá eru lögð. Oft er alls ekki unnt að svara spurningu um þetta, nema vera þá gæddur einhvers konar guðlegu innsæi. Ég þekki engan dómara sem hefur yfir henni að ráða og hefði sjálfur beðist lausnar frá starfi sem dómari sama dag og slík krafa hefði verið gerð til mín. Spurningin sem dómarinn þarf að svara er miklu einfaldari: Hvað hefur sannast lögfullri sönnun í málinu sem ég hef fyrir framan mig um sök hins sakaða manns? Þetta verkefni er af mannlegum toga og gerir starfandi dómurum fært að gegna störfum sínum.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur

  • Um hlutverk Hæstaréttar sem fordæmisdómstóls?

    Þekktur dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna lét eitt sinn orð falla eitthvað á þá leið að það væru ekki aðilar dómsmálsins sem til meðferðar væri hverju sinni sem skiptu mestu máli fyrir verk hæstaréttarins. Úrlausn hans varðaði réttarkerfið í heild og þar með talið sambærilega hagsmuni allra annarra sem við það búa í nútíð og framtíð, þó að þeirra hagsmunir væru ekki að sinni til meðferðar fyrir dómi. Þessi orð lýsa eðli starfa hins fordæmisskapandi dómstóls. Lögskýringar hans hafa almennt gildi fyrir réttarkerfið sem hann starfar í.

    Öll réttarkerfi, sem vilja standa undir nafni, þurfa á slíkum dómstól að halda; dómstól sem tekur til landsins alls (eða þess réttarsvæðis sem hann starfar í) og er öðrum dómstólum æðri að því leyti að hann hefur vald til að endurskoða dóma þeirra. Slíkur dómstóll stuðlar að samræmi í lagaframkvæmd, en það er einmitt grunnforsenda í réttarríkjum að almennar reglur, sem eru þær sömu fyrir alla, gildi um sambærileg atvik. Á Íslandi á Hæstiréttur að gegna þessu hlutverki.

    Hvað felst í því að dómur er talinn hafa gildi sem fordæmi? Um þetta hefur margt verið skrifað og skrafað, meðal annars um hvort fordæmi teljist til bindandi réttarheimilda. Um þetta hef ég fjallað í bókinni Um fordæmi og valdmörk dómstóla, sem kom út 2003. Umræður um þetta leiði ég hjá mér að sinni en segi bara að mitt svar við spurningunni sé á þá leið að í fordæmi felist fyrirheit um að úr sambærilegu álitaefni verði að óbreyttum lögum leyst með sama hætti ef á það reynir í framtíðinni. Þetta fyrirheit byggist ekki síst á því að sömu dómarar, það er þeir sem skipa hinn æðsta dómstól, muni dæma í nýju máli þar sem reynir á sama álitaefni.

    Af þessum ástæðum ættu menn að átta sig á að rétturinn ætti eins og nú er komið að vera aðeins skipaður fimm dómurum en ekki sjö eins og nú er. Þessir fimm ættu allir að dæma í öllum málum. Engin vandkvæði eru á því að hrinda þessari breytingu í framkvæmd þar sem málafjöldinn er ekki meiri en svo.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur

  • Forsjárhyggja

    Það er alveg merkilegt að sjá hvernig forsjárhyggjan getur heltekið suma menn sem gefa kost á sér í pólitík og ná kjöri sem alþingismenn. Alþingismenn eru, svo sem von er, haldnir þörf til að láta gott af sér leiða. Margir þeirra halda að því markmiði verði best náð með því að hafa vitið fyrir fólkinu, þ.e.a.s. vernda það fyrir sjálfu sér. Þeim ætlar seint að lærast þau einföldu sannindi, að eina verndin sem eitthvað dugar, er sú vernd sem í því felst, að hver og einn maður taki ábyrgð á eigin lífi.

    Tökum dæmi:

    Í lögum nr. 32/2009 um ábyrgðarmenn segir svo í 1. gr.:

    „Markmið þessara laga er að setja reglur um ábyrgðir einstaklinga, draga úr vægi ábyrgða og að stuðla að því að lánveitingar verði miðaðar við greiðslugetu lántaka og hans eigin tryggingar.“

    Nú er ljóst að allir menn geta beðið fjárhagslegan skaða af því að hafa tekið ákvarðanir sem snerta eigin fjármál. Sé hlutverk alþingismanna að vernda menn fyrir slíkum skaða má spyrja, hvers vegna þeir taki ekki sjálfsákvörðunarrétt af mönnum í miklu ríkari mæli heldur en hér er gert. Af hverju er foreldrum til dæmis ekki bannað að gefa börnum sínum peninga eða önnur verðmæti, a.m.k. ef fjárhagur þeirra leyfir ekki slíkt að mati forsjármanna? Hvað um ábyrgðir á fjárframlögum til óarðbærs atvinnurekstrar? Hvað um ákvörðun skyldmenna um að gerast sameigendur í atvinnurekstri með ótakmarkaðri ábyrgð eigenda? Hvað um einlægan vilja manna til að styðja við lífshlaup vinar eða skyldmennis hvað sem líður hættu á að tapa peningum vegna ábyrgðar á skuldbindingum hans? Lengi mætti telja.

    Þegar maður stendur frammi fyrir ákvörðun um hvort hann eigi að ábyrgjast skuld fyrir annan mann, ætti hann að spyrja sjálfan sig einnar spurningar: Er ég tilbúinn til að borga skuldina fyrir manninn ef hann getur það ekki sjálfur? Sé svarið játandi, er í lagi að gangast í ábyrgðina, annars ekki. Alþingismenn eiga hreint ekkert að skipta sér af þessu. Svo einfalt er það.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur

  • Hefndin

    Í pistli mínum um efni bókarinnar um helförina var fjallað um glæpsamlega meðferð þýskra ráðamanna á Gyðingum á árum síðari heimsstyrjaldarinnar, þar sem þeir slátruðu Gyðingum í milljónavís. Morðæðið náði reyndar einnig til annarra hópa sem þýsku ofbeldismennirnir töldu ekki verðuga til lífs í ríki sínu.

    Fyrir liggur að ennþá eru „starfandi“ hópar hryðjuverkamanna, eins og Hamas-liðar. sem segjast hafa það eina markmið að þurrka ríki Ísraels af yfirborði jarðar. Þeir gerðu vopnaða árás inn fyrir landamæri Ísraels haustið 2023 og myrtu þar og handtóku fjölda íbúa með skelfilegum hætti.

    Við þessu hafa Ísraelsmenn brugðist með hervaldi. Að sögn Hamas-liða hafa þeir varpað yfir þá sprengjuregni sem heimsbyggðin hefur fordæmt, þar sem fyrir sprengjunum verða óbreyttir borgarar í stórum stíl sem ekkert hafa til saka unnið annað en að búa á landsvæði sem hryðjuverkamenn nota sem hlífðarskjöld. Hvort sem þetta er sönn frásögn eða ósönn er ljóst að heimsbyggðin hefur fordæmt Ísraelsmenn.

    Ekki verður betur séð en að ríki Ísraels, sem stofnað var á árinu 1948, hafi lagt áherslu á að taka upp vestræna siði við skipulag og starfshætti sína. Til þess heyrir að refsa árásarmönnum með ákvörðunum dómstóla svo sem leitast var við að gera með hinum svonefndu Nurnberg-réttarhöldum að stríðinu loknu. Þar fengu ofbeldismenn réttarstöðu samborninga, þ.m.t. að færa fram varnir áður en dómar voru felldir.

    Það er skoðun mín og margra fleiri manna að sterkasta vörn Ísraelsmanna við að verjast hryðjuverkum sé að halda fast við leikreglur réttarríkja og refsa einungis þeim sem nást til að leiða þá fyrir dóm. Sé gert ráð fyrir að fréttir af árásum þeirra á Gasa séu sannar skulum við hafa í huga að þeir hafa enga heimild til að haga hefnd sinni á þann hátt að saklausir borgarar „verði á milli“ og þurfi að líða sams konar hörmungar og Ísraelsmenn þurftu sjálfir að líða af hendi Þjóðverja á stríðsárunum. Sterkasta vörn Ísraelsmanna er að halda sig við að fylgja því lýðræðislega stjórnskipulagi sem þeir virðast hafa tekið upp í ríki sínu og fyrr var getið. Það er ekki tæk aðferð í hermdaraðgerðum þeirra að haga þeim þannig að fjöldi saklausra manna, þ.m.t. konur og börn, verði fórnarlömbin, hafi sú verið reyndin.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur

  • Helförin

    Ég hef að undanförnu verið að lesa bók sem kom út í Bretlandi á árinu 2017 og í íslenskri þýðingu á síðasta ári 2025. Þetta er bókin „Helförin“ („Holocaust“) eftir Laurence Rees sem Jón Þ. Þór þýddi. Talið er að þessi bók gefi ítarlegustu og nákvæmustu lýsingu á fjöldamorðum Þjóðverja á árum síðari heimsstyrjaldar (hófust reyndar nokkrum árum fyrr). Segja bestu heimildir að Adolf Hitler og leppar hans hafi myrt um 6 milljónir Gyðinga í þessari ótrúlegu morðbylgju, sem nefnd hefur verið helförin. Höfðu fórnarlömbin ekki annað til saka unnið en að vera af kynstofni gyðinga.

    Í frjálsa alfræðiritinu (Wikipedia) er skilgreiningin á Gyðingum þessi: „Gyðingar eru þjóð, menningarhópur og trúarlegur söfnuður sem á rætur að rekja til Hebrea í Austurlöndum nær til forna. Menningarheimur Gyðinga, þjóðarvitund þeirra og trú eru tengd nánum böndum. Zíonismi varð til seint á 19. öld og gengur út á sameiningu gyðinga í einu ríki. Algengast er nú á dögum að fólk fæðist inn í gyðingdóm, enda eru ströng skilyrði fyrir því að taka trúna. Gyðingar eru minnihlutahópur í öllum löndum fyrir utan Ísrael. Þeir hafa verið ofsóttir í aldanna rás og náðu þær ofsóknir hámarki með helförinni. Fyrir stofnun Ísraelsríkis árið 1948 höfðu Gyðingar í tvígang átt eigið ríki. Sökum flókinna tengsla þjóðarvitundar, trúar og ætternis er vandkvæðum bundið að kasta tölu á Gyðinga sem þjóð en áætlaður fjöldi Gyðinga í dag eru um 15 milljónir, þar af búa flestir í Bandaríkjunum og Ísrael.“

    Það sem gerir morð Þjóðverja á Gyðingum sérstakt er að þau áttu sér ekki stað í stríðsátökum heldur voru þetta morð „heima fyrir“, þ.e.a.s. hinir myrtu voru einfaldlega borgarar í Þýskalandi og nálægum löndum sem Þjóðverjar höfðu náð á sitt vald í styrjöldinni. Flest fórnarlambanna voru friðsælir borgarar sem aldrei höfðu tekið sér vopn í hönd í því skyni að skaða aðra. Fólkið var að mestu sótt til heimila sinna og flutt í morðstöðvar Nasistanna sem stjórnuðu Þýskalandi á þessum árum. Liggur fyrir að um 6 milljón Gyðinga hafi verið teknar af lífi í þessum hryðjuverkum þýsku glæpamannanna. Aftökurnar voru flestar framkvæmdar með því að loka fórnarlömbin inni í skemmum og dæla svo eiturgasi á þau. Ástæðurnar voru sagðar vera hatur Hitlers og raunar fleiri valdsmanna í Þýskalandi á Gyðingum, án þess að unnt hafi verið að skilja til hlítar orsakir þessa djúpstæða haturs. Þetta eru talin vera umfangsmestu fjöldamorð mannkynssögunnar.

    Ef satt skal segja veldur það óhug að lesa lýsingarnar í bókinni á þessum voðaverkum. Framferði morðingjanna var eiginlega óskiljanlegt. Við skulum hafa í huga að þetta voru borgarar í grónu vestrænu ríki, þar sem menn hefðu mátt vænta virðingar fyrir rétti manna til lífs, sama hverjir þeir voru, og kröfu þeirra til að njóta almennra mannréttinda, eins og þeim hefur verið lýst í lögum og sáttmálum. Það er eins og Hitler og snáðar hans hafi náð einhvers konar heljartökum á stórum hluta almennings í Þýskalandi, þar sem margir kepptust við að taka þátt í þessari geðveiki og leggja þessum forystumönnum lið við voðaverkin. Og þá förum við að hugsa um okkar eigið ríki og ástand á ofstækisfullum stéttum þess, sem hafa stefnumál eða markmið sem skeyta ekki um grunnréttindi annarra. Við skulum hafa hugfast að Nasistarnir sem stóðu fyrir þessari meðferð á öðrum borgurum voru uppi fyrir ótrúlega skömmum tíma. Margt fólk sem nú er komið á efri árin ólst upp á heimilum morðingjanna eða afkomenda þeirra í fyrsta lið. Við viljum auðvitað trúa því að það hugarástand sem olli þessum ósköpum sé horfið úr samfélagi eins og okkar. Eða er ekki svo?

    Í stuttum pistli mun ég svo velta upp hugleiðingum um hvernig ríki eins og okkar ber að taka á þessum ódæðismönnum eftir að glæpum þeirra linnir og þeir þurfa að horfast í augu sjálfra sín.

    Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur