Nótur um lögfræði

Þegar dómari leitar að réttri niðurstöðu í máli sem hann dæmir, verður hann að ganga út frá því að aðeins ein niðurstaða sé rétt. Þó að fleiri en ein niðurstaða komi til greina má hann ekki telja sér trú um að hann megi velja þá sem honum hugnast best. Beiting réttarheimilda ræður, en ekki persónuleg afstaða dómarans.

Dómstólar mega ekki byggja dóma sína á öðru en beitingu réttarheimilda sem í gildi voru þegar atvik máls áttu sér stað. Margir lögfræðingar telja að þeim sé heimilt að byggja dóma sína á lögum sem síðar voru sett en voru ekki komin í gildi þegar atvik máls urðu. Þetta er þeim óheimilt.

Margir lögfræðingar, þar með talið viðurkenndir fræðimenn í lögfræði, halda því fram að dómstólum sé heimilt að setja ný lög – jafnvel að þeir takist á við löggjafann um lagasetninguna. Þetta er fjarstæða. Dómstólar hafa enga slíka heimild, enda er skýrt í stjórnarskránni að þeir skuli starfa eftir lögum. Þá er auðvitað átt við lög sem í gildi voru þegar atvik máls urðu. Þeir hafa heldur ekkert umboð frá almenningi til lagasetningar, eins og alþingismenn hafa.

Þessi sannindi um lögfræðilegar úrlausnir ættu sem flestir að þekkja til þess að geta forðast misnotkun af hálfu þeirra sem fara með dómsvaldið í landinu.

Jón Steinar Gunnlaugsson lögmaður