Davíð Oddsson er látinn. Við vorum vinir og samherjar lengst af á stjórnmálaferli hans sem borgarstjóri í Reykjavík og forsætisráðherra, Hann sýndi sig í þessum valdastöðum reyna að fylgja hugsjónum sínum í raun og veru, þar sem frelsi, einkaframtak og ábyrgð voru megineinkennin. Hann beitti lítt þeim aðferðum flestra stjórnmálamanna að tala bara en gera ekki. Þannig náði hann á valdatíma sínum að setja efnismikið mark sitt á framvindu þjóðmálanna í okkar litla landi. Þar var flest til bóta og stendur þjóðin í þakkarskuld við Davíð fyrir framsýni hans og viljann til að koma fram heilbrigðum breytingum á þjóðfélaginu. Meðan á þessu stóð héldum við góðu og uppbyggilegu sambandi hvor við annan. Ég held að flestir Íslendingar verði honum þakklátir í framtíðinni fyrir ævistarfið sem hann skilur eftir sig.
Blessuð sé minning Davíðs Oddssonar.
Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur