Refsivarsla

Almenningi hefur borist vitneskja um alvarlega afbrotastarfsemi uppá síðkastið. M.a. var upplýst að nýkjörinn alþingismaður hafi látið sér detta í hug fyrir 13 árum að sækja vændiskonu heim til að svala með henni þörfum sínum. Komst hann inn í andyrið á fjölbýlishúsinu sem konan bjó í en skorti kjark til að hringja á dyrabjöllu konunnar. Er þetta talið vera brot á siðareglum rétttrúnaðarsinna og varða afsögn af þingmennsku.

Þá hefur komið í ljós nýverið að starfsmaður í kjötvinnslu hafi upp úr aldamótum látið sér detta í hug að taka lambalæri með sér úr vinnunni og eta það heima hjá sér. Ekkert varð úr þessu þar sem móðir hans bauð honum í mat þennan dag. Er þetta talið varða við reglur bænda um meðferð sláturhúsa á kindakjöti og viðurlög mannsins verið ákveðin með þvingun til fiskáts í heila viku.

Þá hefur verið upplýst að starfandi bankastjóri hafi stuttu fyrir hrunið mikla árið 2008 látið sér detta í hug að taka nokkra seðla úr kassa gjaldkerans og nota féð til að kaupa sér rjómaís. Ekkert varð úr þessu þar sem eiginkona mannsins taldi að hann myndi fitna af því að eta ísinn. Hugdetta mannsins um þetta varðaði missi á bankastjórastöðunni og fluttist maðurinn þá í gjaldkerastarfið.

Þessi alvarlega afbrotastarfsemi í landinu hefur hefur að undanförnu valdið slíku annríki hjá rannsóknarlögreglunni að starfsmenn hannar eru fjarri því að ná að sinna störfum sínum. Hefur dómsmálaráðherra óskað eftir aukafjárveitingu til að geta staðið undir kostnaði við refsiovörsluna. Bendir allt til þess að orðið verði við kröfunum um þetta til að reyna að ná höndum yfir afbrotin.

Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur