Um hlutverk Hæstaréttar sem fordæmisdómstóls?

Þekktur dómari við Hæstarétt Bandaríkjanna lét eitt sinn orð falla eitthvað á þá leið að það væru ekki aðilar dómsmálsins sem til meðferðar væri hverju sinni sem skiptu mestu máli fyrir verk hæstaréttarins. Úrlausn hans varðaði réttarkerfið í heild og þar með talið sambærilega hagsmuni allra annarra sem við það búa í nútíð og framtíð, þó að þeirra hagsmunir væru ekki að sinni til meðferðar fyrir dómi. Þessi orð lýsa eðli starfa hins fordæmisskapandi dómstóls. Lögskýringar hans hafa almennt gildi fyrir réttarkerfið sem hann starfar í.

Öll réttarkerfi, sem vilja standa undir nafni, þurfa á slíkum dómstól að halda; dómstól sem tekur til landsins alls (eða þess réttarsvæðis sem hann starfar í) og er öðrum dómstólum æðri að því leyti að hann hefur vald til að endurskoða dóma þeirra. Slíkur dómstóll stuðlar að samræmi í lagaframkvæmd, en það er einmitt grunnforsenda í réttarríkjum að almennar reglur, sem eru þær sömu fyrir alla, gildi um sambærileg atvik. Á Íslandi á Hæstiréttur að gegna þessu hlutverki.

Hvað felst í því að dómur er talinn hafa gildi sem fordæmi? Um þetta hefur margt verið skrifað og skrafað, meðal annars um hvort fordæmi teljist til bindandi réttarheimilda. Um þetta hef ég fjallað í bókinni Um fordæmi og valdmörk dómstóla, sem kom út 2003. Umræður um þetta leiði ég hjá mér að sinni en segi bara að mitt svar við spurningunni sé á þá leið að í fordæmi felist fyrirheit um að úr sambærilegu álitaefni verði að óbreyttum lögum leyst með sama hætti ef á það reynir í framtíðinni. Þetta fyrirheit byggist ekki síst á því að sömu dómarar, það er þeir sem skipa hinn æðsta dómstól, muni dæma í nýju máli þar sem reynir á sama álitaefni.

Af þessum ástæðum ættu menn að átta sig á að rétturinn ætti eins og nú er komið að vera aðeins skipaður fimm dómurum en ekki sjö eins og nú er. Þessir fimm ættu allir að dæma í öllum málum. Engin vandkvæði eru á því að hrinda þessari breytingu í framkvæmd þar sem málafjöldinn er ekki meiri en svo.

Jón Steinar Gunnlaugsson lögfræðingur