{"id":596,"date":"2020-09-13T19:25:03","date_gmt":"2020-09-13T19:25:03","guid":{"rendered":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/2020\/09\/13\/hophyggja\/"},"modified":"2025-05-26T10:38:14","modified_gmt":"2025-05-26T10:38:14","slug":"hophyggja","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/2020\/09\/13\/hophyggja\/","title":{"rendered":"H\u00f3phyggja"},"content":{"rendered":"<p id=\"viewer-en7mj\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">Hafa menn leitt hugann a\u00f0 \u00fev\u00ed hversu mj\u00f6g f\u00e9l\u00f6g og flokkadr\u00e6ttir eru sterkar frumforsendur fyrir alls kyns \u00e1greiningi og vo\u00f0averkum manna? H\u00f3phyggjan er fyrirb\u00e6ri sem r\u00e6nir menn heilli hugsun og hindrar \u00fe\u00e1 \u00ed a\u00f0 taka \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 sj\u00e1lfum s\u00e9r. \u00dea\u00f0 er svo miklu au\u00f0veldara a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed einhverju sem h\u00f3purinn gerir. F\u00e9lagar \u00ed h\u00f3pnum \u00feurfa ekki a\u00f0 taka pers\u00f3nulega \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 h\u00e1ttsemi hans. N\u00f3g er a\u00f0 v\u00edsa til \u00feess a\u00f0 h\u00f3purinn hafi teki\u00f0 afst\u00f6\u00f0u og f\u00e9lagarnir \u00ed h\u00f3pnum sty\u00f0ji hana. \u00deetta er l\u00edka stundum nefnt hjar\u00f0heg\u00f0un, sem er l\u00fdsandi or\u00f0 fyrir svona breytni.<\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-b66bs\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\">\n<p id=\"viewer-2ffpc\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">M\u00e9r er n\u00e6r a\u00f0 halda a\u00f0 h\u00f3phyggjan s\u00e9 r\u00e1\u00f0andi h\u00e1ttur \u00ed samf\u00e9lagi mannanna. Menn eru me\u00f0 einum h\u00f3pi og \u00fe\u00e1 gegn \u00f6\u00f0rum. Styrjaldir eru t.d. reknar \u00ed nafni h\u00f3pa. Ein \u00fej\u00f3\u00f0 r\u00e6\u00f0st \u00e1 a\u00f0ra og drepur sem mest h\u00fan m\u00e1. \u00deeir sem drepnir eru hafa f\u00e6stir nokkru sinni gert \u00e1 hluta \u00feeirra sem drepa. \u00deeir sem tilheyra einni \u00fej\u00f3\u00f0 standa saman og \u00fe\u00e1 eftir atvikum gegn \u00f6\u00f0rum \u00fej\u00f3\u00f0um. Pers\u00f3nuleg h\u00e1ttsemi og \u00e1byrg\u00f0 kemur sjaldnast vi\u00f0 s\u00f6gu. Sama m\u00e1 segja um tr\u00faarh\u00f3pa, sem reglulega fremja illvirki \u00e1 f\u00f3lki \u00far \u00f6\u00f0rum h\u00f3pum. N\u00fa er fr\u00e1 \u00fev\u00ed sagt a\u00f0 m\u00f6rgum, jafnvel flestum, almennum borgurum \u00ed \u00de\u00fdskalandi Hitlers hafi veri\u00f0 kunnugt um \u00fatr\u00fdmingu gy\u00f0inga en ekki l\u00e1ti\u00f0 m\u00e1li\u00f0 samt neitt til s\u00edn taka. <\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-6ec37\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\">\n<p id=\"viewer-16gq2\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">Og innan v\u00e9banda \u00fej\u00f3\u00f0anna byggist mannl\u00edfi\u00f0 \u00e1 h\u00f3phyggju. Menn eru s\u00fdknt og heilagt a\u00f0 leggja m\u00e1lsta\u00f0 li\u00f0 bara fyrir \u00fe\u00e1 s\u00f6k a\u00f0 \u00feeir tilheyra h\u00f3pnum sem f\u00e6rir hann fram. \u00cd f\u00e9l\u00f6gum er mj\u00f6g oft kalla\u00f0 eftir samst\u00f6\u00f0u f\u00e9lagsmanna um svonefnd bar\u00e1ttum\u00e1l \u00feeirra. \u00de\u00e1 er veri\u00f0 a\u00f0 bi\u00f0ja f\u00e9lagsmennina um a\u00f0 leggja ekki sj\u00e1lfst\u00e6tt mat \u00e1 \u00fea\u00f0 sem um r\u00e6\u00f0ir, heldur einfaldlega sty\u00f0ja \u00fea\u00f0 \u00e1 grundvelli h\u00f3phyggjunnar. Og \u00fea\u00f0 dugar flestum. \u00deeir \u00feurfa ekki a\u00f0 finna nein \u00f6nnur r\u00f6k fyrir afst\u00f6\u00f0unni en \u00feau a\u00f0 h\u00f3purinn hafi hana.<\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-5ktjs\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\">\n<p id=\"viewer-6oh22\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">\u00c1 vettvangi stj\u00f3rnm\u00e1la h\u00e1ttar oftast svo a\u00f0 flokkarnir hafa afst\u00f6\u00f0u sem fulltr\u00faum \u00e1 \u00feeirra vegum er talin bera skylda til a\u00f0 fylgja. Allt a\u00f0 einu er sk\u00fdrt \u00e1 \u00fea\u00f0 kve\u00f0i\u00f0 \u00ed stj\u00f3rnarskr\u00e1 a\u00f0 al\u00feingismenn s\u00e9u eing\u00f6ngu bundnir vi\u00f0 sannf\u00e6ringu s\u00edna (48. gr.). Hollustan vi\u00f0 h\u00f3pinn (flokkinn) tekur \u00feessu samt oftast fram. Segja m\u00e1 a\u00f0 sl\u00edk h\u00f3phyggja s\u00e9 a\u00f0 hluta til nau\u00f0synleg, \u00fear sem mynda \u00fearf h\u00f3pa til a\u00f0 unnt s\u00e9 a\u00f0 hafa skikk \u00e1 landstj\u00f3rninni. \u00deetta gengur samt oftast miklu lengra en nau\u00f0syn krefur.<\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-8nl4j\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\">\n<p id=\"viewer-ebe18\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">Og fj\u00f6lskipa\u00f0ir d\u00f3mst\u00f3lar eru ofurseldir h\u00f3phyggjunni. \u00dear eru d\u00f3mar oftast kve\u00f0nir upp \u00e1n \u00feess a\u00f0 einstakir \u00fe\u00e1tttakendur \u00ed h\u00f3pnum geri s\u00e9rstaklega grein fyrir sinni afst\u00f6\u00f0u og r\u00f6kum fyrir henni. Samt eiga \u00feeir a\u00f0eins a\u00f0 beita r\u00e9ttarheimildum, eins og \u00feeir skilja \u00fe\u00e6r, vi\u00f0 \u00farlausn m\u00e1lanna. Sumir d\u00f3marar hafa meira a\u00f0 segja kve\u00f0i\u00f0 upp \u00far um a\u00f0 samsta\u00f0a innan h\u00f3psins s\u00e9 s\u00e9rstakt keppikefli. \u00deessi a\u00f0fer\u00f0afr\u00e6\u00f0i felur \u00fea\u00f0 \u00ed s\u00e9r a\u00f0 ni\u00f0ursta\u00f0a d\u00f3msm\u00e1la r\u00e6\u00f0st fremur af samningum innan h\u00f3psins en af beitingu r\u00e9ttarheimilda. D\u00f3mari sem f\u00e9kk a\u00f0 r\u00e1\u00f0a \u00ed s\u00ed\u00f0ustu viku skuldar hinum samst\u00f6\u00f0u \u00ed \u00feessari svo ekki hallist \u00e1 \u00ed h\u00f3pnum. A\u00f0ilar d\u00f3msm\u00e1lanna ver\u00f0a f\u00f3rnarl\u00f6mb h\u00f3phyggjunnar.<\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-9h179\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\">\n<p id=\"viewer-d3e6p\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">\u00de\u00f3 a\u00f0 fallast megi \u00e1 a\u00f0 h\u00f3par s\u00e9u a\u00f0 vissu marki nau\u00f0synlegir og gagnlegir, \u00e6tti \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 getum kalla\u00f0 einstaklingshyggju a\u00f0 r\u00e1\u00f0a miklu meiru um hagi okkar og afst\u00f6\u00f0u. Menn eiga a\u00f0 taka sj\u00e1lfir afst\u00f6\u00f0u til m\u00e1lefna \u00ed miklu r\u00edkari m\u00e6li en n\u00fa er og vera tilb\u00fanir til a\u00f0 taka \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00feeirri afst\u00f6\u00f0u. M\u00e9r er n\u00e6r a\u00f0 halda a\u00f0 styrj\u00f6ldum og herna\u00f0arlegum vo\u00f0averkum myndi f\u00e6kka \u00ed heiminum ef menn t\u00e6kju upp \u00feennan hugsunarh\u00e1tt \u00ed miklu r\u00edkari m\u00e6li en n\u00fa er gert og leg\u00f0u h\u00f3phyggjuna til hli\u00f0ar sem almennan l\u00edfsm\u00e1ta, eins og h\u00fan svo sannarlega er n\u00fa.<\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-fri21\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">J\u00f3n Steinar Gunnlaugsson l\u00f6gma\u00f0ur<\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Hafa menn leitt hugann a\u00f0 \u00fev\u00ed hversu mj\u00f6g f\u00e9l\u00f6g og flokkadr\u00e6ttir eru sterkar frumforsendur fyrir alls kyns \u00e1greiningi og vo\u00f0averkum manna? H\u00f3phyggjan er fyrirb\u00e6ri sem r\u00e6nir menn heilli hugsun og hindrar \u00fe\u00e1 \u00ed a\u00f0 taka \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 sj\u00e1lfum s\u00e9r. \u00dea\u00f0 er svo miklu au\u00f0veldara a\u00f0 taka \u00fe\u00e1tt \u00ed einhverju sem h\u00f3purinn gerir. F\u00e9lagar \u00ed h\u00f3pnum [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-596","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/596","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=596"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/596\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":867,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/596\/revisions\/867"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=596"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=596"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=596"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}