{"id":499,"date":"2020-08-05T19:00:14","date_gmt":"2020-08-05T19:00:14","guid":{"rendered":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/2020\/08\/05\/margra-kosta-vol\/"},"modified":"2025-05-26T10:52:05","modified_gmt":"2025-05-26T10:52:05","slug":"margra-kosta-vol","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/2020\/08\/05\/margra-kosta-vol\/","title":{"rendered":"Margra kosta v\u00f6l?"},"content":{"rendered":"<p id=\"viewer-8s3gu\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">Fyrir nokkru birtist \u00ed Stundinni grein eftir Stef\u00e1n Sn\u00e6varr pr\u00f3fessor \u00ed heimspeki. \u00cd grein sinni fjallar h\u00f6fundur um pistil sem Karl Th. Birgisson ritstj\u00f3ri Her\u00f0ubrei\u00f0ar haf\u00f0i birt \u00e1 sama sta\u00f0 \u00ed vor, \u00fear sem hann fjalla\u00f0i um n\u00fd\u00fatkomna b\u00f3k m\u00edna \u201eUmb\u00fa\u00f0alaust \u2013 huglei\u00f0ingar \u00ed h\u00e1lfa \u00f6ld\u201c. Stef\u00e1n Sn\u00e6varr skrifar ekki miki\u00f0 um \u00feessa n\u00fd\u00fatkomnu b\u00f3k. Skrif hans eru a\u00f0 mestu tileinku\u00f0 annarri b\u00f3k eftir mig sem kom fyrst \u00fat \u00e1 \u00e1rinu 1987 hj\u00e1 Almenna b\u00f3kaf\u00e9laginu og bar heiti\u00f0 \u201eDeilt \u00e1 d\u00f3marana\u201c. \u00dear haf\u00f0i \u00e9g fjalla\u00f0 \u00e1 gagnr\u00fdnan h\u00e1tt um nokkra d\u00f3ma H\u00e6star\u00e9ttar \u00cdslands sem h\u00f6f\u00f0u var\u00f0a\u00f0 vernd mannr\u00e9ttinda \u00ed landinu. <\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-erbes\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">Stef\u00e1n er ekki l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur, en hann er sonur fyrrverandi h\u00e6star\u00e9ttard\u00f3marans \u00c1rmanns Sn\u00e6varrs sem n\u00fa er l\u00e1tinn. \u00c1rmann var \u00e1g\u00e6tur l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur og gegndi um n\u00e6r aldarfj\u00f3r\u00f0ungs skei\u00f0 st\u00f6\u00f0u pr\u00f3fessors vi\u00f0 lagadeild H\u00e1sk\u00f3la \u00cdslands. Hann var d\u00f3mari vi\u00f0 H\u00e6star\u00e9tt \u00e1 \u00e1runum 1972 til 1984. V\u00edst m\u00e1 \u00fev\u00ed telja a\u00f0 Stef\u00e1n hafi \u00ed uppvextinum kynnst l\u00f6gfr\u00e6\u00f0inni svol\u00edti\u00f0 \u00ed gegnum f\u00f6\u00f0ur sinn og st\u00f6rf hans. Kannski m\u00e1 sj\u00e1 \u00ed vi\u00f0horfum Stef\u00e1ns birtast \u00e1hrif fr\u00e1 lagavi\u00f0horfum sem ef til vill voru r\u00edkjandi \u00e1 \u00cdslandi fyrir nokkrum \u00e1ratugum. \u00deau leiddu stundum til \u00farlausna sem fremur ver\u00f0a rakin til ge\u00f0\u00fe\u00f3tta d\u00f3menda en beitingar r\u00e9ttarheimilda. \u00deessi vi\u00f0horf eru afar \u00e1hrifamikil enn \u00feann dag \u00ed dag, \u00fe\u00f3 a\u00f0 vonandi hafi dregi\u00f0 \u00far \u00e1hrifam\u00e6tti \u00feeirra.<\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-9sma2\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">Ekki finnst m\u00e9r Stef\u00e1ni takast mj\u00f6g vel upp \u00feegar hann r\u00e6\u00f0ir um a\u00f0fer\u00f0afr\u00e6\u00f0i \u00ed l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i. M\u00e9r s\u00fdnist hann saka mig um a\u00f0 einfalda m\u00e1l fyrir m\u00e9r og hampar mj\u00f6g or\u00f0um sem \u00e9g held upp \u00e1 og nota oft \u00feegar \u00e9g tel mig hafa sk\u00fdrt \u00fat l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ilegar \u00farlausnir \u00ed ritu\u00f0u m\u00e1li: \u201eSvo einfalt er \u00fea\u00f0.\u201c S\u00fdnist m\u00e9r Stef\u00e1n einmitt telja l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ilegar \u00farlausnir fl\u00f3knar, jafnvel svo a\u00f0 s\u00e1 sem \u00far leysi eigi margra kosta v\u00f6l vi\u00f0 \u00farlausn s\u00edna. Hann segir: \u201eVandinn er s\u00e1 a\u00f0 \u00fea\u00f0 eru \u00e6vinlega til fleiri en ein t\u00e6k (e. acceptable) t\u00falkun \u00e1 \u00f6llum l\u00f6gum&#8230;\u201c Vir\u00f0ist hann telja a\u00f0 d\u00f3marinn geti vali\u00f0 \u00e1 milli \u00feessara kosta og eigi \u00fev\u00ed val \u00e1 milli mismunandi \u00farlausna. Kannski \u00feetta s\u00e9 eitthva\u00f0 sem hann drakk \u00ed sig me\u00f0 m\u00f3\u00f0urmj\u00f3lkinni? A\u00f0 minnsta kosti \u00feekkjast \u00feessi vi\u00f0horf vel og \u00fe\u00e1 ekki s\u00edst hj\u00e1 d\u00f3murum fyrri t\u00ed\u00f0ar. \u00dea\u00f0 var eins og \u00feeir teldu d\u00f3murum heimilt a\u00f0 l\u00e1ta stj\u00f3rnm\u00e1lavi\u00f0horf og pers\u00f3nulegar l\u00edfssko\u00f0anir hafa afgerandi \u00e1hrif \u00e1 \u00farlausnir s\u00ednar. \u00deetta er a\u00f0fer\u00f0afr\u00e6\u00f0i af \u00fev\u00ed tagi sem \u00edslenskir d\u00f3marar hafa gegnum t\u00ed\u00f0ina beitt til a\u00f0 koma fram ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um sem \u00feeim hafa \u00fe\u00f3tt \u201e\u00e6skilegar\u201c. <\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-f14p3\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">Gagnr\u00fdni m\u00edn \u00ed b\u00f3kinni for\u00f0um beindist m.a. a\u00f0 a\u00f0fer\u00f0um af \u00feessu tagi. Skrif m\u00edn s\u00ed\u00f0an, sem or\u00f0in eru nokkur a\u00f0 v\u00f6xtum, hafa einnig a\u00f0 verulegu leyti beinst a\u00f0 \u00feessu sama. \u00c9g s\u00e9 \u00fev\u00ed \u00e1st\u00e6\u00f0u til a\u00f0 gera af \u00feessu tilefni Stef\u00e1ns tilraun til a\u00f0 sk\u00fdra a\u00f0fer\u00f0afr\u00e6\u00f0i l\u00f6gfr\u00e6\u00f0innar eins og \u00e9g hef s\u00e9\u00f0 hana \u00ed st\u00f6rfum m\u00ednum og skrifum.<\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-ctrj7\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">\u00cd samf\u00e9lagi okkar hefur veri\u00f0 komi\u00f0 \u00e1 f\u00f3t s\u00e9rst\u00f6kum stofnunum til a\u00f0 leysa \u00far \u00e1greiningsefnum, hvort sem er milli r\u00edkis og einstaklinga e\u00f0a einstaklinga innbyr\u00f0is. \u00deessar stofnanir nefnum vi\u00f0 d\u00f3mst\u00f3la. \u00deeir eiga a\u00f0 beita l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ilegum a\u00f0fer\u00f0um vi\u00f0 a\u00f0 komast a\u00f0 ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um.<\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-fi435\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">\u00cd stj\u00f3rnarskr\u00e1 er kve\u00f0i\u00f0 svo \u00e1 a\u00f0 d\u00f3mst\u00f3lar skuli einungis d\u00e6ma eftir l\u00f6gum. \u00cd \u00feessu felst ekki einungis bann vi\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 d\u00f3mendur l\u00e1ti pers\u00f3nuleg e\u00f0a p\u00f3lit\u00edsk sj\u00f3narmi\u00f0 r\u00e1\u00f0a ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um d\u00f3msm\u00e1la, heldur felst l\u00edka \u00ed \u00feessu krafa um a\u00f0 l\u00f6g\u00f0 s\u00e9 r\u00e6kt vi\u00f0 a\u00f0 finna \u00fe\u00e1 lagareglu sem vi\u00f0 \u00e1 og beita henni s\u00ed\u00f0an \u00e1 \u00farlausnarefni\u00f0. L\u00f6gfr\u00e6\u00f0in felur \u00fev\u00ed \u00ed s\u00e9r a\u00f0 kenna hva\u00f0a a\u00f0fer\u00f0ir s\u00e9u heimilar vi\u00f0 \u00farlausn m\u00e1lanna.<\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-21mcl\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\"><span style=\"color: #4a4a4a; text-decoration: inherit;\">Menn \u00e6ttu a\u00f0 hafa \u00ed huga a\u00f0 \u00ed stj\u00f3rnskipun okkar er d\u00f3mst\u00f3lum ekki \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 m\u00f3ta n\u00fdjar lagareglur. \u00dev\u00ed hlutverki gegnir l\u00f6ggjafinn, Al\u00feingi. <\/span>Verkefni d\u00f3mst\u00f3la er \u00e1 hinn b\u00f3ginn a\u00f0 finna \u00fe\u00e6r reglur sem voru \u00ed gildi \u00feegar atvik m\u00e1ls ur\u00f0u og beita \u00feeim \u00e1 \u00farlausnarefni\u00f0. \u00dea\u00f0 er reyndar undarlegt a\u00f0 heyra l\u00f6gfr\u00e6\u00f0imennta\u00f0a menn halda \u00fev\u00ed fram a\u00f0 d\u00f3mst\u00f3lar hafi heimildir til a\u00f0 mynda n\u00fdjar reglur. Hef\u00f0u \u00feeir sl\u00edkar heimildir f\u00e6list \u00ed \u00feeim s\u00fa a\u00f0fer\u00f0afr\u00e6\u00f0i a\u00f0 leysa skuli \u00far \u00e1greiningi me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 fela m\u00e1li\u00f0 \u00ed hendur m\u00f6nnum sem hef\u00f0u heimildir til a\u00f0 m\u00f3ta n\u00fdjar reglur sem ekki voru til sta\u00f0ar, \u00feegar atvik m\u00e1ls ur\u00f0u, og beita \u00feeim afturvirkt \u00e1 \u00e1greiningsefni\u00f0. \u00deetta finnst m\u00e9r a\u00f0 ekki f\u00e1i sta\u00f0ist. Svo einfalt er \u00fea\u00f0.<\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-5dmo7\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">A\u00f0fer\u00f0afr\u00e6\u00f0in \u00ed l\u00f6gfr\u00e6\u00f0inni vi\u00f0 \u00farlausn \u00e1greiningsm\u00e1la byggist \u00e1 \u00feeirri forsendu a\u00f0 einungis ein ni\u00f0ursta\u00f0a s\u00e9 r\u00e9tt \u00ed \u00feeim l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ilega \u00e1greiningi sem til \u00farlausnar er. Allir sem um fjalla ver\u00f0a a\u00f0 byggja \u00e1 \u00feessari forsendu. Ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur d\u00f3msm\u00e1la eiga til d\u00e6mis ekki a\u00f0 geta or\u00f0i\u00f0 mismunandi eftir \u00fev\u00ed hva\u00f0a d\u00f3mari d\u00e6mir. Menn mega ekki l\u00e1ta \u00fea\u00f0 rugla sig \u00ed \u00feessu a\u00f0 menn kann a\u00f0 greina \u00e1 um hver hin r\u00e9tta ni\u00f0ursta\u00f0a s\u00e9 a\u00f0 efni til. Forsendan um a\u00f0 verkefni\u00f0 s\u00e9 a\u00f0 leita hinnar r\u00e9ttu ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u ver\u00f0ur a\u00f0 gilda hj\u00e1 hverjum og einum. <\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-e3p73\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">\u00c9g hef starfa\u00f0 sem m\u00e1lflytjandi og d\u00f3mari alla m\u00edna t\u00ed\u00f0 \u00ed l\u00f6gfr\u00e6\u00f0inni. \u00dea\u00f0 hefur oft komi\u00f0 fyrir mig a\u00f0 hafa ekki haft hugmynd um hver ver\u00f0a muni hin r\u00e9tta ni\u00f0ursta\u00f0a \u00feegar vinnan vi\u00f0 a\u00f0 leita hennar hefst \u00ed \u00fev\u00ed m\u00e1li sem til me\u00f0fer\u00f0ar er. \u00dea\u00f0 ver\u00f0ur \u00fe\u00e1 oft hreinlega heillandi vi\u00f0fangsefni a\u00f0 feta sig \u00e1fram eftir \u00e1litaefnunum \u00ed r\u00e9ttri r\u00f6\u00f0 hverju \u00e1 eftir \u00f6\u00f0ru, \u00fear til ni\u00f0ursta\u00f0an birtist \u00ed lokin og er \u00fe\u00e1 oftar en ekki sk\u00fdr og greinileg. Enginn ge\u00f0\u00fe\u00f3tti hefur \u00fe\u00e1 fengi\u00f0 a\u00f0 komast a\u00f0, einungis \u00f6gu\u00f0 l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ileg a\u00f0fer\u00f0afr\u00e6\u00f0i.<\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-2jdat\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">Svo hef \u00e9g einatt upplifa\u00f0 \u00fea\u00f0 \u00ed fl\u00f3knustu m\u00e1lum a\u00f0 m\u00e1li\u00f0 sn\u00fdst \u00ed raun og veru um tilt\u00f6lulega einfalt grundvallaratri\u00f0i, \u00fe\u00f3 a\u00f0 t\u00edma og vinnu hafi teki\u00f0 a\u00f0 finna \u00fea\u00f0 og \u00fe\u00e1 oftast vegna \u00feess a\u00f0 annar m\u00e1lsa\u00f0ilinn hefur haft hagsmuni af \u00fev\u00ed a\u00f0 reyna a\u00f0 lei\u00f0a fram \u00e1lyktanir sem sty\u00f0ja hans m\u00e1lsta\u00f0 og hann telur a\u00f0 r\u00e1\u00f0a eigi ni\u00f0urst\u00f6\u00f0unni. \u00dea\u00f0 er allt saman e\u00f0lilegt \u00fev\u00ed \u00ed d\u00f3msm\u00e1lunum takast m\u00e1lsa\u00f0ilar \u00e1 og hver og einn \u00feeirra talar fyrir s\u00ednum hagsmunum. Skylda \u00feess sem d\u00e6mir er a\u00f0 kynna s\u00e9r \u00e1st\u00e6\u00f0ur m\u00e1lsa\u00f0ila til hl\u00edtar. A\u00f0 \u00f6\u00f0rum kosti getur hann ekki fundi\u00f0 \u00fe\u00e1 r\u00e9ttu. Hann \u00fearf me\u00f0 \u00f6\u00f0rum or\u00f0um ekki a\u00f0eins a\u00f0 finna r\u00f6kin fyrir henni, heldur \u00fearf hann l\u00edka a\u00f0 hafna \u00feeim sem kunna a\u00f0 v\u00edsa \u00ed a\u00f0rar \u00e1ttir.<\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-1853u\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">Margir menn, b\u00e6\u00f0i l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingar og a\u00f0rir a\u00f0hyllast a\u00f0fer\u00f0afr\u00e6\u00f0i sem \u00feeir telja a\u00f0 gefi \u00feeim valkosti um ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u. \u00deeir leggja \u00fe\u00e1 venjulega \u00e1herslu \u00e1 a\u00f0 \u00farlausnarefni\u00f0 s\u00e9 svo fl\u00f3ki\u00f0 a\u00f0 ekki s\u00e9 unnt a\u00f0 \u00e1kve\u00f0a me\u00f0 markvissum h\u00e6tti hver s\u00e9 hin r\u00e9tta ni\u00f0ursta\u00f0a. Au\u00f0vita\u00f0 kann \u00farlausnarefni\u00f0 a\u00f0 vera fl\u00f3ki\u00f0 \u00feannig a\u00f0 lausnin ver\u00f0ur ekki \u00f6rugg fyrr en a\u00f0 lokinni gaumg\u00e6filegri athugun \u00e1 \u00f6llu \u00fev\u00ed sem m\u00e1li kann a\u00f0 skipta. \u00deetta breytir engu um a\u00f0 hin r\u00e9tta ni\u00f0ursta\u00f0a hl\u00fdtur alltaf a\u00f0 vera ein, e\u00f0a s\u00fa sem lei\u00f0ir af r\u00e9ttri beitingu r\u00e9ttarheimildanna. Menn \u00e6ttu a\u00f0 muna a\u00f0 til a\u00f0fer\u00f0afr\u00e6\u00f0i \u00ed l\u00f6gfr\u00e6\u00f0i heyrir a\u00f0 beita r\u00e9ttarheimildum eftir heimildargildi \u00feeirra. \u00deannig ganga til d\u00e6mis sett l\u00f6g fyrir \u00f3l\u00f6gfestum heimildum (venju, e\u00f0li m\u00e1ls o.s.frv.). <\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-4n3fk\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">D\u00f3masafni\u00f0 er fullt af d\u00e6mum um a\u00f0 d\u00f3marar hafa bers\u00fdnilega ekki beitt \u00feeirri a\u00f0fer\u00f0afr\u00e6\u00f0i sem \u00feeim var skylt heldur l\u00e1ti\u00f0 ge\u00f0\u00fe\u00f3ttann r\u00e1\u00f0a. H\u00e9r l\u00e6t \u00e9g duga a\u00f0 nefna l\u00edti\u00f0 d\u00e6mi sem allir skilja. \u00c1 \u00feeim t\u00edma a\u00f0 deilt var um hvort leyfa \u00e6tti s\u00f6lu \u00e1 \u00e1fengu \u00f6li h\u00e9r \u00e1 landi t\u00f3k hann Guttormur upp \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a m\u00f6nnum \u00fej\u00f3nustu vi\u00f0 a\u00f0 blanda kl\u00e1rav\u00edni, sem \u00feeir h\u00f6f\u00f0u keypt \u00ed r\u00edkinu, saman vi\u00f0 pilsner. Vi\u00f0 \u00feessa athafnasemi var au\u00f0vita\u00f0 ekki um tilb\u00faning \u00e1fengis (bruggun) a\u00f0 r\u00e6\u00f0a. \u00deetta var bara bl\u00f6ndun \u00e1fengis vi\u00f0 \u00f3\u00e1fengan drykk l\u00edkt og \u00e1tti s\u00e9r sta\u00f0 \u00fat um allt, \u00fear me\u00f0 tali\u00f0 \u00e1 heimilum landsmanna hvort sem er vi\u00f0 neyslu \u00e1fengis e\u00f0a matarger\u00f0, svo d\u00e6mi s\u00e9u nefnd. En Guttormur var \u00e1k\u00e6r\u00f0ur og sakfelldur fyrir tilb\u00faning \u00e1fengis (bruggun) sem var refsiver\u00f0ur samkv\u00e6mt \u00e1fengisl\u00f6gum! Tveir fastir emb\u00e6ttisd\u00f3marar \u00ed H\u00e6star\u00e9tti sakfelldu hann (H.1988.104).[1] \u00deetta var au\u00f0vita\u00f0 r\u00e6nulaus vitleysa sem l\u00edklega \u00e1tti r\u00f3t s\u00edna a\u00f0 rekja til \u00feess a\u00f0 d\u00f3mararnir hafi veri\u00f0 andv\u00edgir \u00fev\u00ed a\u00f0 leyfa s\u00f6lu \u00e1 \u00e1fengu \u00f6li \u00ed landinu. E.t.v. hafa \u00feeir sj\u00e1lfir frekar vilja\u00f0 lettv\u00edn!? \u00dea\u00f0 er a\u00f0 \u00f6llum l\u00edkindum st\u00f3rska\u00f0legt fyrir trausti\u00f0 sem d\u00f3mst\u00f3lar \u00feurfa a\u00f0 nj\u00f3ta, \u00feegar svona ge\u00f0\u00fe\u00f3tti er l\u00e1tinn r\u00e1\u00f0a ni\u00f0urst\u00f6\u00f0um.<\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-c58mu\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">Svo s\u00fdnist m\u00e9r Stef\u00e1n Sn\u00e6varr vilja gagnr\u00fdna mig fyrir a\u00f0 hafa tali\u00f0 r\u00e9ttinn til a\u00f0 standa utan f\u00e9laga tilheyra hinu stj\u00f3rnarskr\u00e1rvernda\u00f0a frelsi til a\u00f0 mynda f\u00e9l\u00f6g me\u00f0 \u00f6\u00f0rum. Huglei\u00f0ing hans um \u00feetta er reyndar ekki vel skiljanleg en s\u00fa er oft raunin \u00feegar reynt er a\u00f0 gera einfalda hluti fl\u00f3kna me\u00f0 einhverju sem ekki kemur m\u00e1linu vi\u00f0.[2] Au\u00f0velt \u00e6tti a\u00f0 vera a\u00f0 \u00e1tta sig \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 r\u00e9ttinum til a\u00f0 mynda f\u00e9l\u00f6g me\u00f0 \u00f6\u00f0rum hl\u00fdtur af r\u00f6kbundinni nau\u00f0syn a\u00f0 fylgja r\u00e9ttur til a\u00f0 synja a\u00f0ild a\u00f0 f\u00e9l\u00f6gum sem menn vilja ekki ver\u00f0a f\u00e9lagar \u00ed. A\u00f0 \u00f6\u00f0rum kosti v\u00e6ri unnt a\u00f0 \u00fevinga menn til stu\u00f0nings vi\u00f0 m\u00e1lsta\u00f0 sem \u00feeir kunna a\u00f0 vera andv\u00edgir.<\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-fekgf\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">Segja m\u00e1 a\u00f0 kenningar um a\u00f0 margbreytilegar ni\u00f0urst\u00f6\u00f0ur s\u00e9u d\u00f3mst\u00f3lum heimilar \u00ed sama m\u00e1linu s\u00e9u hentugar fyrir \u00fe\u00e1 sem vilja a\u00f0 \u00farlausnir d\u00f3mst\u00f3la r\u00e1\u00f0ist fremur af t\u00e6kif\u00e6rismennsku en beitingu r\u00e9ttarheimilda. <\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-1roru\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\">A\u00f0 lokum tek \u00e9g fram a\u00f0 m\u00e9r finnst \u00e6skilegt a\u00f0 menn tj\u00e1i sig um starfsemi d\u00f3mst\u00f3la og umfj\u00f6llun um verkh\u00e6tti \u00feeirra, \u00fe\u00f3 a\u00f0 ekki s\u00e9u l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingar. Stef\u00e1n Sn\u00e6varr er pr\u00f3fessor \u00ed heimspeki. Kannski honum takist \u00fe\u00f3 stundum betur upp \u00ed skrifum s\u00ednum \u00e1 \u00feeim vettvangi en \u00ed \u00feeirri grein sem h\u00e9r hefur veri\u00f0 ger\u00f0 a\u00f0 umtalsefni?<\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-6d42g\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\"><em style=\"font-style: italic;\"> J\u00f3n Steinar Gunnlaugsson l\u00f6gma\u00f0ur <\/em><\/span><\/p>\n<p id=\"viewer-1sl4k\" class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\"><span class=\"eEPyq\"><br \/>\n[1] Sj\u00e1 b\u00f3k m\u00edna \u201e\u00cd krafti sannf\u00e6ringar\u201c (R.v\u00edk 2014), bls. 50-52.<br \/>\n[2] Um \u00feennan d\u00f3m er fjalla\u00f0 \u00ed b\u00f3k minni \u201e\u00cd krafti sannf\u00e6ringar\u201c, bls. 68-71. Sj\u00e1 l\u00edka b\u00f3k m\u00edna \u201eUmb\u00fa\u00f0alaust \u2013 huglei\u00f0ingar \u00ed h\u00e1lfa \u00f6ld\u201c (R.v\u00edk 2020), bls. 36-41 og 47-58.<\/p>\n<p><\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Fyrir nokkru birtist \u00ed Stundinni grein eftir Stef\u00e1n Sn\u00e6varr pr\u00f3fessor \u00ed heimspeki. \u00cd grein sinni fjallar h\u00f6fundur um pistil sem Karl Th. Birgisson ritstj\u00f3ri Her\u00f0ubrei\u00f0ar haf\u00f0i birt \u00e1 sama sta\u00f0 \u00ed vor, \u00fear sem hann fjalla\u00f0i um n\u00fd\u00fatkomna b\u00f3k m\u00edna \u201eUmb\u00fa\u00f0alaust \u2013 huglei\u00f0ingar \u00ed h\u00e1lfa \u00f6ld\u201c. Stef\u00e1n Sn\u00e6varr skrifar ekki miki\u00f0 um \u00feessa n\u00fd\u00fatkomnu b\u00f3k. [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-499","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/499","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=499"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/499\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":871,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/499\/revisions\/871"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=499"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=499"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=499"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}