{"id":436,"date":"2023-06-05T09:27:33","date_gmt":"2023-06-05T09:27:33","guid":{"rendered":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/2023\/06\/05\/frelsi-med-abyrgd\/"},"modified":"2023-06-05T09:27:33","modified_gmt":"2023-06-05T09:27:33","slug":"frelsi-med-abyrgd","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/2023\/06\/05\/frelsi-med-abyrgd\/","title":{"rendered":"Frelsi me\u00f0 \u00e1byrg\u00f0"},"content":{"rendered":"<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-6s7gp\"><span class=\"eEPyq\"><span>\u00d6llum m\u00f6nnum er hollt a\u00f0 leggja sig eftir hugmyndafr\u00e6\u00f0i \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lunum vegna \u00feess a\u00f0 hugmyndir manna um grundv\u00f6ll saml\u00edfs me\u00f0 \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki eru til \u00feess fallnar a\u00f0 gefa l\u00edfshlaupi \u00feeirra auki\u00f0 gildi og f\u00e6ra \u00feeim l\u00edfsgle\u00f0i og hamingju. M\u00ednar hugsanir f\u00e9llu flj\u00f3tlega \u00ed \u00feann farveg, a\u00f0 \u00e9g taldi frelsi einstaklinga me\u00f0 r\u00edka \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 eigin l\u00edfi eiga a\u00f0 vera s\u00fa undirsta\u00f0a sem l\u00edf mitt skyldi byggjast \u00e1. <\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-3gfi1\"><span class=\"eEPyq\"><span>\u00deegar \u00e9g horfi til baka skynja \u00e9g a\u00f0 strax innan vi\u00f0 tv\u00edtugt haf\u00f0i \u00e9g eignast \u00fe\u00e1 sannf\u00e6ringu um meginatri\u00f0i \u00ed l\u00edfinu sem \u00e9g hef haldi\u00f0 s\u00ed\u00f0an. \u00c1 \u00feeim \u00e1rum var \u00e9g fenginn til a\u00f0 flytja \u00e1 fundum ungli\u00f0a \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lum erindi um hugmyndafr\u00e6\u00f0i sem ver\u00f0ugt v\u00e6ri a\u00f0 lifa eftir. \u00c1 \u00feessum \u00e1rum las \u00e9g miki\u00f0 \u00ed ritum um stj\u00f3rnm\u00e1laheimspeki. \u00deetta \u00e1tti eftir a\u00f0 m\u00f3ta afst\u00f6\u00f0u m\u00edna og hugsj\u00f3nir. <\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-7f1qh\"><span class=\"eEPyq\"><span>\u00deegar \u00e9g les n\u00fana erindi sem \u00e9g flutti og voru birt opinberlega m\u00e1 vera a\u00f0 m\u00e9r finnist \u00feau vera ung\u00e6\u00f0isleg \u00e1 k\u00f6flum. En hugsunin sem \u00fear birtist var hei\u00f0arleg og hrein. Meginbo\u00f0skapurinn er s\u00e1 a\u00f0 \u00fe\u00e6r grunnhugmyndir sem standa a\u00f0 baki l\u00fd\u00f0r\u00e6\u00f0islegu stj\u00f3rnkerfi eigi l\u00edka vi\u00f0 \u00ed daglegu l\u00edfi manna. \u00deeir eigi \u00feannig ekki a\u00f0eins a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0ild a\u00f0 landsstj\u00f3rninni me\u00f0 kosningar\u00e9tti s\u00ednum heldur einnig a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 r\u00e1\u00f0a s\u00ednum eigin m\u00e1lefnum \u00ed r\u00edkum m\u00e6li og vir\u00f0a r\u00e9tt annarra til hins sama. <\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-an1cb\"><span class=\"eEPyq\"><span>\u00cd endurminningunni finnst m\u00e9r a\u00f0 hugsanir um \u00feetta hafi skipt meginm\u00e1li fyrir myndun \u00feeirra sko\u00f0ana \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lum og raunar um \u00e6skilega h\u00e6tti \u00ed daglegu l\u00edfi manna sem \u00e9g s\u00ed\u00f0an hef haft. Ni\u00f0ursta\u00f0an er a\u00f0 l\u00edklega s\u00e9u \u00feeir f\u00e1ir sem hl\u00fdddu \u00e1 erindi  m\u00edn, sem hafi muna\u00f0 miki\u00f0 af \u00fev\u00ed sem sagt var, \u00feannig a\u00f0 \u00fea\u00f0 entist \u00feeim. \u00dea\u00f0 ger\u00f0i l\u00edklega a\u00f0eins s\u00e1 sem tala\u00f0i! \u00c9g held a\u00f0 m\u00e1lum s\u00e9 oft svona fari\u00f0. Til d\u00e6mis gr\u00e6ddi \u00e9g miki\u00f0 \u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 kenna vi\u00f0 h\u00e1sk\u00f3lana og f\u00f3lst \u00fea\u00f0 ekki s\u00edst \u00ed \u00feeirri vinnu sem \u00e9g lag\u00f0i \u00ed undirb\u00faninginn. Vonandi hefur eitthva\u00f0 l\u00edka seti\u00f0 eftir hj\u00e1 nemendunum. Kennsla hefur a\u00f0 m\u00ednu mati fyrst og fremst \u00feann tilgang a\u00f0 vekja \u00e1huga nemenda \u00e1 vi\u00f0fangsefninu \u00feannig a\u00f0 \u00feeir ver\u00f0i tilb\u00fanir til a\u00f0 leggja sig sj\u00e1lfir eftir n\u00e1msefninu.<\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-8mdnl\"><span class=\"eEPyq\"><span>\u00dea\u00f0 er a\u00f0 m\u00ednum d\u00f3mi afar mikils vir\u00f0i fyrir einstaklinga a\u00f0 tileinka s\u00e9r \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 stundum k\u00f6llum l\u00edfssko\u00f0un. \u00de\u00e1 \u00e1 \u00e9g vi\u00f0 afst\u00f6\u00f0u til l\u00edfsins sem r\u00e6\u00f0st af grunnhugmyndum um hva\u00f0 s\u00e9 skynsamlegt og hva\u00f0 lei\u00f0i til mests velfarna\u00f0ar \u00ed l\u00edfi einstaklinga en \u00fe\u00f3 kannski umfram allt hva\u00f0 teljist vera r\u00e9tt og hva\u00f0 rangt \u00fat fr\u00e1 m\u00e1lefnalegum sj\u00f3narmi\u00f0um eing\u00f6ngu og \u00feeim si\u00f0fer\u00f0islegu og lagalegu vi\u00f0horfum sem vi\u00f0komandi hefur. \u00deegar tekin er afsta\u00f0a til m\u00e1la ver\u00f0a menn a\u00f0 skilja a\u00f0 hagsmunir, sem \u00feeir sj\u00e1lfir kunna a\u00f0 hafa e\u00f0a hafa sam\u00fa\u00f0 me\u00f0, mega ekki valda fr\u00e1vikum fr\u00e1 \u00fev\u00ed sem r\u00e9tt er samkv\u00e6mt \u00feeim meginsj\u00f3narmi\u00f0um sem \u00feeir hafa tileinka\u00f0 s\u00e9r og sett \u00ed \u00f6ndvegi \u00ed l\u00edfi s\u00ednu. <\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-7a7d2\"><span class=\"eEPyq\"><span>\u00cd sk\u00e1lds\u00f6gunni Undirsta\u00f0an, eftir \u00feann merka h\u00f6fund Ayn Rand, sag\u00f0i fr\u00e1 tveimur t\u00edu \u00e1ra b\u00f6rnum tala saman um hva\u00f0 \u00feau hyg\u00f0ust gera \u00ed l\u00edfinu. Anna\u00f0 \u00feeirra, drengur, svara\u00f0i spurningu um hva\u00f0 hann \u00e6tla\u00f0i a\u00f0 gera me\u00f0 or\u00f0unum. \u201e\u00dea\u00f0 sem er r\u00e9tt.\u201c  Ekki fl\u00f3ki\u00f0! (Sj\u00e1 Ayn Rand \u201eUndirsta\u00f0an\u201c \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu El\u00ednar Gu\u00f0mundsd\u00f3ttur, \u00fatg. Almenna b\u00f3kaf\u00e9lagi\u00f0 2012, bls. 10.)<\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-6ve1a\"><span class=\"eEPyq\"><span>\u00de\u00f3 a\u00f0 vi\u00f0 tileinkum okkur svona vi\u00f0horf \u00feurfum vi\u00f0 samt a\u00f0 skilja a\u00f0 engin trygging er fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum alltaf r\u00e9tt fyrir okkur. Og vi\u00f0 ver\u00f0um l\u00edka jafnan a\u00f0 vera tilb\u00fain til a\u00f0 skipta um sko\u00f0un \u00e1 \u00feeim m\u00e1lefnum sem vi\u00f0 t\u00f6kum afst\u00f6\u00f0u til ef n\u00fdjar uppl\u00fdsingar e\u00f0a r\u00f6ksemdir birtast okkur. \u00de\u00f3 a\u00f0 engin trygging s\u00e9 fyrir \u00fev\u00ed a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6fum alltaf r\u00e9tt fyrir okkur gerir \u00fea\u00f0 samt ekkert til svo lengi sem vi\u00f0 reynum af einl\u00e6gum huga a\u00f0 taka \u00fe\u00e1 bestu afst\u00f6\u00f0u sem v\u00f6l er \u00e1. Meira ver\u00f0ur ekki krafist af okkur. Og \u00fea\u00f0 sem mestu m\u00e1li skiptir, vi\u00f0 getum sj\u00e1lf ekki krafist meira af okkur sj\u00e1lfum. <\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-599mf\"><span class=\"eEPyq\"><span>Hafi ma\u00f0ur breytt r\u00e9tt, eftir bestu samvisku, getur enginn gert honum neitt. Hann getur sta\u00f0i\u00f0 aleinn gagnvart m\u00e1l\u00e6\u00f0i, h\u00e1va\u00f0a og ford\u00e6mingum \u00e1n \u00feess a\u00f0 sl\u00edkt hreyfi vi\u00f0 honum, a\u00f0eins ef hann hefur hl\u00fdtt kalli samvisku sinnar og gert \u00fea\u00f0 sem f\u00f3lst \u00ed svari drengsins \u00ed s\u00f6gu Ayn Rand, \u201e\u00fea\u00f0 sem er r\u00e9tt\u201c, og \u00fe\u00e1 eins og ma\u00f0urinn hefur meti\u00f0 \u00fea\u00f0 sj\u00e1lfur eftir a\u00f0 hafa reynt a\u00f0 taka tillit til alls sem m\u00e1li skiptir. (Sj\u00e1 Ayn Rand \u201eUndirsta\u00f0an\u201c \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu El\u00ednar Gu\u00f0mundsd\u00f3ttur, \u00fatg. Almenna b\u00f3kaf\u00e9lagi\u00f0 2012, bls. 10.)<\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-fpae1\"><span class=\"eEPyq\"><span>\u00c9g hef l\u00edka alltaf haldi\u00f0 upp \u00e1 or\u00f0 sem h\u00f6f\u00f0 eru eftir Abraham Lincoln l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingi \u00ed \u201eNotes on Lawyers\u201c fr\u00e1 1850, en Abraham \u00feessi gegndi eins og menn vita emb\u00e6tti forseta Bandar\u00edkjanna nokkrum \u00e1rum s\u00ed\u00f0ar. Or\u00f0 hans hlj\u00f3\u00f0a svo \u00ed \u00fe\u00fd\u00f0ingu minni: \u201eReyni\u00f0 alltaf a\u00f0 vera hei\u00f0arleg; og ef \u00fei\u00f0 geti\u00f0 ekki a\u00f0 eigin d\u00f3mi veri\u00f0 hei\u00f0arleg \u00ed starfi ykkar sem l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingar, veri\u00f0 \u00fe\u00e1 hei\u00f0arleg vi\u00f0 a\u00f0 gera eitthva\u00f0 anna\u00f0.\u201c<\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-1u2mt\"><span class=\"eEPyq\"><span>Setjum okkur \u00ed svol\u00edti\u00f0 h\u00e1t\u00ed\u00f0legar stellingar og veltum fyrir okkur grundvellinum fyrir \u00fev\u00ed samf\u00e9lagi sem vi\u00f0 \u00f6ll erum \u00ed vi\u00f0 anna\u00f0 f\u00f3lk. Erum vi\u00f0 ekki sj\u00e1lf grunneiningin? Vi\u00f0 h\u00f6fum au\u00f0vita\u00f0 aldrei veri\u00f0 be\u00f0in um a\u00f0 semja okkur inn \u00ed samf\u00e9lag vi\u00f0 a\u00f0ra. Flest teljum vi\u00f0 samt a\u00f0 okkur beri si\u00f0fer\u00f0ileg skylda til \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku \u00ed sl\u00edku samf\u00e9lagi. \u00c1st\u00e6\u00f0an er n\u00e1b\u00fdli\u00f0 vi\u00f0 a\u00f0ra og \u00f3hj\u00e1kv\u00e6mileg sameiginleg vi\u00f0fangsefni okkar og \u00feeirra. \u00deess vegna beygjum vi\u00f0 okkur flest undir a\u00f0 teljast \u00fe\u00e1tttakendur \u00ed sameiginlegu skipulagi me\u00f0 \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki. <\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-f48hd\"><span class=\"eEPyq\"><span>\u00deetta skipulag hefur \u00fer\u00f3ast me\u00f0 \u00fdmsum h\u00e6tti, til d\u00e6mis hafa myndast einingar sem samanstanda af \u00feeim einstaklingum sem byggja \u00e1kve\u00f0in og skilgreind landsv\u00e6\u00f0i. \u00deeir mynda saman \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 k\u00f6llum r\u00edki og setja s\u00e9r \u00fear reglur um samb\u00fa\u00f0 s\u00edna innan endimarka \u00feess. Vi\u00f0 gerum f\u00e6st miklar athugasemdir vi\u00f0 \u00feetta. <\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-8or11\"><span class=\"eEPyq\"><span>Meginhugmyndin hl\u00fdtur samt a\u00f0 vera s\u00fa a\u00f0 einstaklingurinn \u00ed sl\u00edku samf\u00e9lagi s\u00e9 grunneiningin. Hann ver\u00f0ur ekki til fyrir samf\u00e9lagi\u00f0, heldur er samf\u00e9lagi\u00f0 til fyrir hann og til a\u00f0 \u00fej\u00f3na einstaklingsbundnum \u00fe\u00f6rfum hans. \u00deessi hugsun m\u00f3tar \u00fe\u00fd\u00f0ingarmikil grunnvi\u00f0horf \u00ed stj\u00f3rnskipun okkar og l\u00f6gum. Til d\u00e6mis er \u00fea\u00f0 almenn meginregla \u00ed okkar r\u00e9ttarkerfi a\u00f0 frelsi manna til or\u00f0a og athafna eigi helst ekki a\u00f0 takmarkast af \u00f6\u00f0ru en r\u00e9ttindum annarra. Vi\u00f0 teljum l\u00edka \u00fe\u00e1 meginreglu gilda a\u00f0 setta lagaheimild \u00feurfi til a\u00f0 sker\u00f0a frelsi einstaklinga og jafnvel a\u00f0 sl\u00edk heimild dugi ekki til ef skert eru r\u00e9ttindi sem nj\u00f3ta r\u00edkari verndar samkv\u00e6mt s\u00e9rst\u00f6kum \u00e1kv\u00e6\u00f0um sem vi\u00f0 h\u00f6fum sett \u00ed stj\u00f3rnl\u00f6g okkar \u00fear a\u00f0 l\u00fatandi. \u00c9g tel a\u00f0 miklu m\u00e1li skipti fyrir \u00fe\u00e1 sem starfa a\u00f0 \u00farlausn m\u00e1la \u00ed r\u00e9ttarkerfinu a\u00f0 \u00e1tta sig vel \u00e1 \u00feessum hugmyndagrundvelli stj\u00f3rnskipunarinnar.<\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-786fk\"><span class=\"eEPyq\"><span>\u00dea\u00f0 er l\u00edka s\u00e9rstaklega \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 nefna annan \u00fe\u00e1tt sem a\u00f0 m\u00ednum d\u00f3mi er \u00f3a\u00f0skiljanlegur hluti af \u00feeirri l\u00edfssko\u00f0un sem h\u00e9r er l\u00fdst, en \u00fea\u00f0 er vir\u00f0ing fyrir \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki og skilyr\u00f0islaus vi\u00f0urkenning \u00e1 r\u00e9tti \u00feess til a\u00f0 haga s\u00ednu eigin l\u00edfi \u00e1 \u00feann h\u00e1tt sem \u00fea\u00f0 sj\u00e1lft k\u00fds svo lengi sem \u00fea\u00f0 ska\u00f0ar ekki a\u00f0ra. Mannf\u00f3lki\u00f0 er fj\u00f6lbreytilegt og einstakir menn hafa mismunandi kenndir, hvatir og langanir \u00ed l\u00edfinu. Allir eiga \u00fear a\u00f0 m\u00ednum d\u00f3mi sama r\u00e9tt. Ekkert okkar hefur heimild til a\u00f0 sitja yfir hlut annarra me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a og banna, eins og svo margir vilja s\u00edfellt gera. Sumir vilja flokka mannf\u00f3lki\u00f0 eftir \u00fej\u00f3\u00f0erni, litarh\u00e6tti, tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0um, kynfer\u00f0i, kynhneig\u00f0, g\u00e1fum e\u00f0a hverju \u00fev\u00ed \u00f6\u00f0ru sem greinir einn mann fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum og l\u00e1ta menn nj\u00f3ta misjafns r\u00e9ttar eftir \u00fev\u00ed hverjum \u00feessara \u201eflokka\u201c \u00feeir tilheyra. Til \u00feess hafa menn yfirleitt enga heimild af \u00feeirri einf\u00f6ldu \u00e1st\u00e6\u00f0u a\u00f0 einn \u00e1 ekki a\u00f0 r\u00e1\u00f0a neinu um einkahagi annars. Svo einfalt er \u00fea\u00f0.<\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-9qfh3\"><span class=\"eEPyq\"><span>Svo er annar eiginleiki sem oft skiptir sk\u00f6pum \u00ed samskiptum milli manna af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er oft nau\u00f0synlegur til a\u00f0 geta haldi\u00f0 vin\u00e1ttu og g\u00f3\u00f0um tengslum \u00e1 l\u00edfi. \u00deetta er h\u00e6fileikinn til a\u00f0 geta be\u00f0ist afs\u00f6kunar. Enginn ma\u00f0ur kemst hj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja einhvern t\u00edma e\u00f0a gera eitthva\u00f0 sem mei\u00f0ir e\u00f0a s\u00e6rir annan, jafnvel g\u00f3\u00f0an vin. Hafi ma\u00f0ur gert \u00feetta og s\u00ed\u00f0an komist a\u00f0 \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 ekki hafi veri\u00f0 fari\u00f0 fram af fullri sanngirni gagnvart \u00feeim sem or\u00f0um var beint a\u00f0, tilheyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 m\u00ednum d\u00f3mi si\u00f0fer\u00f0islegri skyldu a\u00f0 bi\u00f0ja vi\u00f0komandi afs\u00f6kunar. Stundum hef \u00e9g veri\u00f0 of flj\u00f3tur til a\u00f0 beina skeytum a\u00f0 \u00f6\u00f0rum \u00e1n \u00feess a\u00f0 s\u00fdna nau\u00f0synlega sanngirni. \u00c9g tel mig \u00ed sl\u00edkum tilvikum oftast hafa reynt a\u00f0 b\u00e6ta r\u00e1\u00f0 mitt, r\u00e6\u00f0a m\u00e1li\u00f0 vi\u00f0 \u00feann sem \u00ed hlut \u00e1 og bi\u00f0ja hann afs\u00f6kunar \u00e1 frumhlaupinu. \u00dea\u00f0 er regla frekar en undantekning a\u00f0 hrein samskipti af \u00feessu tagi treysti vin\u00e1ttu og gott samband milli manna fremur en a\u00f0 spilla \u00fev\u00ed. \u00c9g hef l\u00edka or\u00f0i\u00f0 vitni a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 skorturinn \u00e1 \u00feessum h\u00e6fileika hefur leitt af s\u00e9r sambandsleysi og jafnvel vinslit, sem au\u00f0veldlega m\u00e1tti komast hj\u00e1. <\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-1m4n8\"><span class=\"eEPyq\"><span>A\u00f0 m\u00ednu \u00e1liti skiptir \u00fea\u00f0 sk\u00f6pum fyrir velfer\u00f0 og hamingju manna a\u00f0 nj\u00f3ta frelsis til a\u00f0 stj\u00f3rna eigin l\u00edfi og taka \u00e1kvar\u00f0anir um hagi sj\u00e1lfs s\u00edn. \u00deessu ver\u00f0ur a\u00f0 fylgja \u00e1byrg\u00f0 \u00feess manns sj\u00e1lfs sem \u00ed hlut \u00e1.  \u00dea\u00f0 er lykilatri\u00f0i. (Sj\u00e1 um \u00feetta riti\u00f0 \u00c1byrg\u00f0arkver eftir Gunnlaug J\u00f3nsson, sem \u00fat kom \u00ed Reykjav\u00edk 2012. \u00cd ritinu eru f\u00e6r\u00f0 fram sterk r\u00f6k fyrir sj\u00f3narmi\u00f0um um a\u00f0 hver ma\u00f0ur skuli nj\u00f3ta frelsis til a\u00f0 taka \u00e1kvar\u00f0anir \u00ed eigin l\u00edfi og bera sj\u00e1lfur \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 \u00feeim. \u00c9g er kunnugur h\u00f6fundinum pers\u00f3nulega og veit a\u00f0 hann m\u00e6lir af heilindum og mannviti.) <\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-61j34\"><span class=\"eEPyq\"><span>\u00cd samf\u00e9lagi mannanna er au\u00f0velt a\u00f0 greina alls kyns vandam\u00e1l, sem einstaklingar og h\u00f3par \u00feeirra eiga vi\u00f0 a\u00f0 str\u00ed\u00f0a. \u00darr\u00e6\u00f0i margra felast \u00ed a\u00f0 vilja taka \u00e1 vandanum me\u00f0 opinberum afskiptum og forsj\u00e1 sem fela \u00ed s\u00e9r sker\u00f0ingu \u00e1 athafnafrelsi borgara almennt og krefst skattheimtu og \u00fe\u00e6r takmarkanir \u00e1 sj\u00e1lfsforr\u00e6\u00f0i borgara sem henni fylgir. Settar eru bo\u00f0- og bannreglur um alls kyns mannlega breytni og refsing l\u00f6g\u00f0 vi\u00f0 ef menn fylgja ekki hinni opinberu forskrift. Stundum er eftirlitsstofnunum hins opinbera komi\u00f0 \u00e1 f\u00f3t til a\u00f0 g\u00e6ta a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 menn fari eftir fyrirm\u00e6lum og tryggja a\u00f0 \u00feeir ver\u00f0i l\u00f6gs\u00f3ttir sem ekki hl\u00fd\u00f0a. \u00de\u00e1 eru t\u00ed\u00f0um settar lagareglur sem fela \u00ed s\u00e9r beinan e\u00f0a \u00f3beinan tilflutning fj\u00e1rmuna \u00e1 milli borgaranna. \u00deessi forsj\u00e1 er a\u00f0 m\u00ednum d\u00f3mi afar \u00f3\u00e6skileg og gerir ekki anna\u00f0 en a\u00f0 r\u00e6na menn \u00e1byrg\u00f0inni \u00e1 sj\u00e1lfum s\u00e9r sem er svo br\u00e1\u00f0nau\u00f0synleg fyrir l\u00edfshlaup okkar og hamingju.<\/span><\/span><\/p>\n<p class=\"_9Y3C- AEhjf c9HmO _5aRph\" dir=\"auto\" id=\"viewer-c68qg\"><span class=\"eEPyq\"><em style=\"font-style:italic\"><span>J\u00f3n Steinar Gunnlaugsson l\u00f6gma\u00f0ur<\/span><\/em><\/span><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>\u00d6llum m\u00f6nnum er hollt a\u00f0 leggja sig eftir hugmyndafr\u00e6\u00f0i \u00ed stj\u00f3rnm\u00e1lunum vegna \u00feess a\u00f0 hugmyndir manna um grundv\u00f6ll saml\u00edfs me\u00f0 \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki eru til \u00feess fallnar a\u00f0 gefa l\u00edfshlaupi \u00feeirra auki\u00f0 gildi og f\u00e6ra \u00feeim l\u00edfsgle\u00f0i og hamingju. M\u00ednar hugsanir f\u00e9llu flj\u00f3tlega \u00ed \u00feann farveg, a\u00f0 \u00e9g taldi frelsi einstaklinga me\u00f0 r\u00edka \u00e1byrg\u00f0 \u00e1 eigin [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-436","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/436","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=436"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/436\/revisions"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=436"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=436"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=436"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}