{"id":1125,"date":"2026-11-14T05:42:11","date_gmt":"2026-11-14T05:42:11","guid":{"rendered":"https:\/\/jonsteinar.is\/?p=1125"},"modified":"2026-11-14T05:42:11","modified_gmt":"2026-11-14T05:42:11","slug":"afmaeli-kp","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/2026\/11\/14\/afmaeli-kp\/","title":{"rendered":"Afm\u00e6li KP"},"content":{"rendered":"\n<p class=\"wp-block-paragraph\">L\u00edklega skiptir f\u00e1tt meira m\u00e1li fyrir l\u00edfshlaup manns en a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 nj\u00f3ta \u00feeirrar g\u00e6fu a\u00f0 eignast \u00ed maka s\u00ednum samfer\u00f0amann sem ver\u00f0ur samherji og s\u00e1luf\u00e9lagi \u00ed \u00fev\u00ed l\u00edfsins stre\u00f0i sem ma\u00f0ur tekur s\u00e9r fyrir hendur. Konan m\u00edn er Krist\u00edn P\u00e1lsd\u00f3ttir hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur. H\u00fan er d\u00f3ttir P\u00e1ls Berg\u00fe\u00f3rssonar fyrrverandi ve\u00f0urstofustj\u00f3ra og konu hans Huldu Baldursd\u00f3ttur. Krist\u00edn er f\u00e6dd 14. n\u00f3vember 1952.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 kynntumst \u00ed byrjun september 1972, fyrir 54 \u00e1rum. H\u00fan var 19 \u00e1ra og \u00e9g 24. \u00c9g s\u00e1 hana \u00ed h\u00f3pi n\u00fdskr\u00e1\u00f0ra \u00ed lagadeildina og heilla\u00f0ist. \u00dea\u00f0 small allt saman strax me\u00f0 neistaflugi hj\u00e1 okkur. N\u00fana eru b\u00f6rnin fimm talsins, barnab\u00f6rnin fimmt\u00e1n og vi\u00f0 erum jafnvel n\u00e1nari hvort \u00f6\u00f0ru en nokkru sinni.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan er alveg einst\u00f6k. Fyrir utan a\u00f0 halda \u00fatliti s\u00ednu svona vel og vera svona falleg er af alls konar \u00f6\u00f0rum \u00e1st\u00e6\u00f0um ekki h\u00e6gt a\u00f0 hugsa s\u00e9r betri f\u00f6runaut \u00ed l\u00edfinu. H\u00fan hugsar svo vel um mig og reyndar a\u00f0ra \u00ed fj\u00f6lskyldunni a\u00f0 undrum s\u00e6tir. \u00dea\u00f0 var fyrir hennar atbeina a\u00f0 \u00e9g h\u00e6tti a\u00f0 drekka fyrir um 47 \u00e1rum og a\u00f0 reykja nokkru s\u00ed\u00f0ar. Svo passar h\u00fan upp \u00e1 heilsufar mitt og reynir a\u00f0 halda m\u00e9r innan skynsemdarmarka \u00e1 vigtinni. H\u00fan er s\u00e9rlega \u00ferautseig vi\u00f0 \u00fea\u00f0 verkefni \u00fe\u00f3 a\u00f0 ekki s\u00e9 \u00fea\u00f0 alltaf au\u00f0velt. \u00c9g v\u00e6ri l\u00f6ngu dau\u00f0ur ef ekki v\u00e6ri fyrir hennar tilverkna\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan hefur l\u00edka veri\u00f0 minn besti samherji \u00ed hverju \u00fev\u00ed sem \u00e9g hef teki\u00f0 m\u00e9r fyrir hendur. Aldrei hef \u00e9g l\u00e1ti\u00f0 fr\u00e1 m\u00e9r skrifa\u00f0an texta til birtingar, og eru \u00feeir or\u00f0nir nokkrir, \u00e1n \u00feess a\u00f0 h\u00fan hafi lesi\u00f0 \u00fe\u00e1 yfir, laga\u00f0 m\u00e1lfar og bent \u00e1 \u00fea\u00f0 sem betur hefur m\u00e1tt fara. Svo h\u00f6fum vi\u00f0 r\u00e6tt \u00f6ll m\u00e1lin og veri\u00f0 eiginlega alltaf samm\u00e1la. Samskipti okkar hafa veri\u00f0 hreinskilin og opin og allir hlutir alltaf r\u00e6ddir eftir \u00fev\u00ed sem \u00fe\u00f6rf hefur veri\u00f0 \u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Heimilisbragurinn hefur l\u00edka alltaf veri\u00f0 svona, \u00feannig a\u00f0 b\u00f6rnin okkar hafa noti\u00f0 g\u00f3\u00f0s af og or\u00f0i\u00f0 \u00fe\u00e1tttakendur \u00ed \u00f6llu saman. Vi\u00f0 h\u00f6ldum a\u00f0 \u00feetta hafi gert \u00feau a\u00f0 betri manneskjum. Saman erum vi\u00f0 einl\u00e6glega stolt af \u00feeim \u00f6llum.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Barnab\u00f6rnin finnast okkur vera einst\u00f6k. \u00dea\u00f0 er s\u00e9rst\u00f6k tilfinning fyrir okkur a\u00f0 sj\u00e1 og fylgjast me\u00f0 \u00feessu fr\u00e1b\u00e6ra f\u00f3lki vaxa \u00far grasi. H\u00f3purinn \u00e1 bara eftir a\u00f0 st\u00e6kka. B\u00f6rnin og barnab\u00f6rnin eru \u00fea\u00f0 d\u00fdrm\u00e6tasta sem vi\u00f0 h\u00f6fum eignast. \u00deetta er ekkert minna en st\u00f3rkostlegur afrakstur af sambandi okkar. H\u00fan heldur utan um h\u00f3pinn og er alltaf til sta\u00f0ar til a\u00f0 veita a\u00f0sto\u00f0 og lei\u00f0s\u00f6gn \u00feegar \u00e1<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00fearf a\u00f0 halda.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r er vel lj\u00f3st a\u00f0 \u00e9g g\u00e6ti ekki hafa or\u00f0i\u00f0 s\u00e1 pr\u00e9dikari fyrir b\u00e6ttum heimi, einkum \u00ed l\u00f6gfr\u00e6\u00f0inni, ef hennar stu\u00f0nings og krafta hef\u00f0i ekki noti\u00f0 vi\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Og n\u00fa erum vi\u00f0 a\u00f0 byrja a\u00f0 ver\u00f0a g\u00f6mul saman. Fr\u00e1b\u00e6rt. \u00dea\u00f0 felst \u00ed \u00fev\u00ed l\u00edfsnautn a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 eldast me\u00f0 sl\u00edkan l\u00edfsf\u00f6runaut s\u00e9r vi\u00f0 hli\u00f0. Hver dagur b\u00fd\u00f0ur upp \u00e1 gefandi samverustundir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 h\u00f6fum veri\u00f0 heppin \u00ed l\u00edfinu fram a\u00f0 \u00feessu. Engir st\u00f3rir harmar hafa duni\u00f0 yfir. \u00c9g veit hins vegar a\u00f0 vi\u00f0 sl\u00edkar a\u00f0st\u00e6\u00f0ur, ef upp koma, mun samband okkar og samsta\u00f0a styrkja okkur \u00ed a\u00f0 takast \u00e1 vi\u00f0 erfi\u00f0leikana.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">M\u00e9r finnst skr\u00edti\u00f0 a\u00f0 hugsa til \u00feess a\u00f0 h\u00fan skuli br\u00e1\u00f0um ver\u00f0a \u00e1ttr\u00e6\u00f0. H\u00fan sem er svo ungleg og falleg. \u00dea\u00f0 er samt fr\u00e1b\u00e6rt a\u00f0 eldast svona saman. Kannski erum vi\u00f0 n\u00fana a\u00f0 lifa okkar besta t\u00edma? L\u00ed\u00f0andi stund me\u00f0 henni er g\u00f3\u00f0 stund. Enn eigum vi\u00f0 einhvern t\u00edma eftir.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">\u00cd reynd h\u00f6fum vi\u00f0 allan t\u00edmann veri\u00f0 a\u00f0 lifa drauminn sem leiddi okkur saman. Vi\u00f0 erum enn a\u00f0 lifa hann og munum, ef gu\u00f0 lofar, halda \u00fev\u00ed \u00e1fram \u00feann t\u00edma sem vi\u00f0 f\u00e1um.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">Vi\u00f0 hana segi \u00e9g bara: Til hamingju me\u00f0 \u00e1rin okkar saman l\u00edfs\u00e1stin m\u00edn. Framt\u00ed\u00f0in blasir bj\u00f6rt vi\u00f0 okkur.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00fan er me\u00f0 platta \u00e1 eldh\u00fasinu sem \u00e1 stendur: \u201eWhen I married Mr. Right, I didn\u2018t know his first name was Always.\u201c Kannski er h\u00fan me\u00f0 \u00feessum netta h\u00e6tti a\u00f0 minna mig \u00e1 a\u00f0 festast ekki \u00ed sj\u00e1lfumgle\u00f0i minni, sem \u00e9g \u00e1 l\u00edklega n\u00f3g af. Hitt er v\u00edst a\u00f0 hafi m\u00e9r einhvern t\u00edma tekist a\u00f0 mynda m\u00e9r \u00e6rlega sko\u00f0un \u00e1 einhverju m\u00e1lefni, hefur h\u00fan \u00e1tt sinn r\u00edka \u00fe\u00e1tt \u00ed \u00fev\u00ed.<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\">H\u00f3purinn okkar er \u00feessi: \u00cdvar P\u00e1ll er f\u00e6ddur 1974. Kona hans er \u00c1sd\u00eds R\u00f3sa \u00de\u00f3r\u00f0ard\u00f3ttir, f\u00e6dd 1978. \u00deau eiga J\u00f3n Steinar (2008), Ernu R\u00fan (2011) og \u00de\u00f3r\u00f0 Orra (2014). Gunnlaugur f\u00e6ddist 1976. Heitkona hans er Sigr\u00ed\u00f0ur \u00d3sk Kristj\u00e1nsd\u00f3ttir (f\u00e6dd 1978). B\u00f6rn Gunnlaugs eru Matthildur El\u00edn (2006), Helgi Henrik og Krist\u00edn Margr\u00e9t (2014). Sigr\u00ed\u00f0ur \u00d3sk \u00e1 l\u00edka Helenu Ingu sem f\u00e6ddist 2014. Konr\u00e1\u00f0 er f\u00e6ddur 1984. Hans kona er Rannveig Bj\u00f6rg \u00de\u00f3rarinsd\u00f3ttir f\u00e6dd 1985. \u00deau eiga Elsu Krist\u00ednu (2013). Berg\u00fe\u00f3r (2017) og tv\u00edburana Brynd\u00edsi og Hrafnhildi (2019). \u00de\u00e1 er Hulda Bj\u00f6rg f\u00e6dd 1986. D\u00f3ttir hennar er Krist\u00edn Edda (2012). Loks er \u00fea\u00f0 s\u00ed\u00f0an Hlynur sem f\u00e6ddist 1988. Kona hans er \u00deura Sigr\u00ed\u00f0ur Gar\u00f0arsd\u00f3ttir f\u00e6dd 1986. \u00deeirra b\u00f6rn eru S\u00f3lger\u00f0ur Vala (2009), sem \u00deura \u00e1tti fyrir, Fr\u00f3\u00f0i (2013) og Hei\u00f0a Fri\u00f0rika (2016).<\/p>\n\n\n\n<p class=\"wp-block-paragraph\"><em>J\u00f3n Steinar Gunnlaugsson l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur<\/em><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>L\u00edklega skiptir f\u00e1tt meira m\u00e1li fyrir l\u00edfshlaup manns en a\u00f0 f\u00e1 a\u00f0 nj\u00f3ta \u00feeirrar g\u00e6fu a\u00f0 eignast \u00ed maka s\u00ednum samfer\u00f0amann sem ver\u00f0ur samherji og s\u00e1luf\u00e9lagi \u00ed \u00fev\u00ed l\u00edfsins stre\u00f0i sem ma\u00f0ur tekur s\u00e9r fyrir hendur. Konan m\u00edn er Krist\u00edn P\u00e1lsd\u00f3ttir hj\u00fakrunarfr\u00e6\u00f0ingur. H\u00fan er d\u00f3ttir P\u00e1ls Berg\u00fe\u00f3rssonar fyrrverandi ve\u00f0urstofustj\u00f3ra og konu hans Huldu Baldursd\u00f3ttur. Krist\u00edn [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-1125","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1125","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1125"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1125\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1126,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1125\/revisions\/1126"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1125"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1125"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1125"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}