{"id":1067,"date":"2026-04-14T12:50:01","date_gmt":"2026-04-14T12:50:01","guid":{"rendered":"https:\/\/jonsteinar.is\/?p=1067"},"modified":"2026-04-14T12:50:01","modified_gmt":"2026-04-14T12:50:01","slug":"virding-fyrir-odru-folki","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/2026\/04\/14\/virding-fyrir-odru-folki\/","title":{"rendered":"Vir\u00f0ing fyrir \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki"},"content":{"rendered":"\n<p>A\u00f0 undanf\u00f6rnu hef \u00e9g birt stutta pistla h\u00e9r \u00e1 Fasb\u00f3kinni, \u00fear sem viki\u00f0 er a\u00f0 nokkrum atri\u00f0um sem \u00e9g tel hafa \u00fe\u00fd\u00f0ingu fyrir okkur \u00f6ll sem viljum lifa eftir gildum sem vil skiljum a\u00f0 r\u00e1\u00f0i hamingju okkar \u00ed sj\u00e1lfu l\u00edfshlaupinu.<\/p>\n\n\n\n<p>\u00dea\u00f0 er l\u00edka s\u00e9rstaklega \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 nefna \u00fe\u00e1tt sem a\u00f0 m\u00ednum d\u00f3mi er \u00f3a\u00f0skiljanlegur hluti af \u00feeirri l\u00edfssko\u00f0un sem h\u00e9r efur veri\u00f0 l\u00fdst.\u00a0\u00a0\u00dea\u00f0 er vir\u00f0ing fyrir \u00f6\u00f0ru f\u00f3lki og skilyr\u00f0islaus vi\u00f0urkenning \u00e1 r\u00e9tti \u00feess til a\u00f0 haga s\u00ednu eigin l\u00edfi \u00e1 \u00feann h\u00e1tt sem \u00fea\u00f0 sj\u00e1lft k\u00fds svo lengi sem \u00fea\u00f0 ska\u00f0ar ekki a\u00f0ra. Mannf\u00f3lki\u00f0 er fj\u00f6lbreytilegt og einstakir menn hafa mismunandi kenndir, hvatir og langanir \u00ed l\u00edfinu. Allir eiga \u00fear a\u00f0 m\u00ednum d\u00f3mi sama r\u00e9tt. Ekkert okkar hefur heimild til a\u00f0 sitja yfir hlut annarra me\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 bj\u00f3\u00f0a og banna, eins og svo margir vilja s\u00edfellt gera. Sumir vilja flokka mannf\u00f3lki\u00f0 eftir \u00fej\u00f3\u00f0erni, litarh\u00e6tti, tr\u00faarbr\u00f6g\u00f0um, kynfer\u00f0i, kynhneig\u00f0, g\u00e1fum e\u00f0a hverju \u00fev\u00ed \u00f6\u00f0ru sem greinir einn mann fr\u00e1 \u00f6\u00f0rum og l\u00e1ta menn nj\u00f3ta misjafns r\u00e9ttar eftir \u00fev\u00ed hverjum \u00feessara \u201eflokka\u201c \u00feeir tilheyra. Til \u00feess hafa menn yfirleitt enga heimild af \u00feeirri einf\u00f6ldu \u00e1st\u00e6\u00f0u a\u00f0 einn \u00e1 ekki a\u00f0 r\u00e1\u00f0a neinu um einkahagi annars. Svo einfalt er \u00fea\u00f0.<\/p>\n\n\n\n<p>Svo er annar eiginleiki sem oft skiptir sk\u00f6pum \u00ed samskiptum milli manna af \u00fev\u00ed a\u00f0 hann er oft nau\u00f0synlegur til a\u00f0 geta haldi\u00f0 vin\u00e1ttu og g\u00f3\u00f0um tengslum \u00e1 l\u00edfi. \u00deetta er h\u00e6fileikinn til a\u00f0 geta be\u00f0ist afs\u00f6kunar. Enginn ma\u00f0ur kemst hj\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 segja einhvern t\u00edma e\u00f0a gera eitthva\u00f0 sem mei\u00f0ir e\u00f0a s\u00e6rir annan, jafnvel g\u00f3\u00f0an vin. Hafi ma\u00f0ur gert \u00feetta og s\u00ed\u00f0an komist a\u00f0 \u00feeirri ni\u00f0urst\u00f6\u00f0u a\u00f0 ekki hafi veri\u00f0 fari\u00f0 fram af fullri sanngirni gagnvart \u00feeim sem or\u00f0um var beint a\u00f0, tilheyrir \u00fea\u00f0 a\u00f0 m\u00ednum d\u00f3mi si\u00f0fer\u00f0islegri skyldu a\u00f0 bi\u00f0ja vi\u00f0komandi afs\u00f6kunar. Stundum hef \u00e9g veri\u00f0 of flj\u00f3tur til a\u00f0 beina skeytum a\u00f0 \u00f6\u00f0rum \u00e1n \u00feess a\u00f0 s\u00fdna nau\u00f0synlega sanngirni. \u00c9g tel mig \u00ed sl\u00edkum tilvikum oftast hafa reynt a\u00f0 b\u00e6ta r\u00e1\u00f0 mitt, r\u00e6\u00f0a m\u00e1li\u00f0 vi\u00f0 \u00feann sem \u00ed hlut \u00e1 og bi\u00f0ja hann afs\u00f6kunar \u00e1 frumhlaupinu. \u00dea\u00f0 er regla frekar en undantekning a\u00f0 hrein samskipti af \u00feessu tagi treysti vin\u00e1ttu og gott samband milli manna fremur en a\u00f0 spilla \u00fev\u00ed. \u00c9g hef l\u00edka or\u00f0i\u00f0 vitni a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 skorturinn \u00e1 \u00feessum h\u00e6fileika hefur leitt af s\u00e9r sambandsleysi og jafnvel vinslit, sem au\u00f0veldlega m\u00e1tti komast hj\u00e1.<\/p>\n\n\n\n<p><strong>\u00d3\u00e6skileg forsj\u00e1<\/strong><\/p>\n\n\n\n<p>A\u00f0 m\u00ednu \u00e1liti skiptir \u00fea\u00f0 sk\u00f6pum fyrir velfer\u00f0 og hamingju manna a\u00f0 nj\u00f3ta frelsis til a\u00f0 stj\u00f3rna eigin l\u00edfi og taka \u00e1kvar\u00f0anir um hagi sj\u00e1lfs s\u00edn. \u00deessu ver\u00f0ur a\u00f0 fylgja \u00e1byrg\u00f0 \u00feess manns sj\u00e1lfs sem \u00ed hlut \u00e1. \u00dea\u00f0 er lykilatri\u00f0i. \u00cd samf\u00e9lagi mannanna er au\u00f0velt a\u00f0 greina alls kyns vandam\u00e1l, sem einstaklingar og h\u00f3par \u00feeirra eiga vi\u00f0 a\u00f0 str\u00ed\u00f0a. \u00darr\u00e6\u00f0i margra felast \u00ed a\u00f0 vilja taka \u00e1 vandanum me\u00f0 opinberum afskiptum og forsj\u00e1 sem fela \u00ed s\u00e9r sker\u00f0ingu \u00e1 athafnafrelsi borgara almennt og krefst skattheimtu og \u00feeirrar takmarkana \u00e1 sj\u00e1lfsforr\u00e6\u00f0i borgara sem henni fylgir. Settar eru bo\u00f0- og bannreglur um alls kyns mannlega breytni og refsing l\u00f6g\u00f0 vi\u00f0 ef menn fylgja ekki hinni opinberu forskrift. Stundum er eftirlitsstofnunum hins opinbera komi\u00f0 \u00e1 f\u00f3t til a\u00f0 g\u00e6ta a\u00f0 \u00fev\u00ed a\u00f0 menn fari eftir fyrirm\u00e6lum og tryggja a\u00f0 \u00feeir ver\u00f0i l\u00f6gs\u00f3ttir sem ekki hl\u00fd\u00f0a. \u00de\u00e1 eru t\u00ed\u00f0um settar lagareglur sem fela \u00ed s\u00e9r beinan e\u00f0a \u00f3beinan tilflutning fj\u00e1rmuna \u00e1 milli borgaranna. \u00deessi forsj\u00e1 er a\u00f0 m\u00ednum d\u00f3mi afar \u00f3\u00e6skileg og gerir ekki anna\u00f0 en a\u00f0 r\u00e6na menn \u00e1byrg\u00f0inni \u00e1 sj\u00e1lfum s\u00e9r sem er svo br\u00e1\u00f0nau\u00f0synleg fyrir l\u00edfshlaup okkar og hamingju.<\/p>\n\n\n\n<p><em>J\u00f3n Steinar Gunnlaugsson l\u00f6gfr\u00e6\u00f0ingur<\/em><\/p>\n\n\n\n<p><\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>A\u00f0 undanf\u00f6rnu hef \u00e9g birt stutta pistla h\u00e9r \u00e1 Fasb\u00f3kinni, \u00fear sem viki\u00f0 er a\u00f0 nokkrum atri\u00f0um sem \u00e9g tel hafa \u00fe\u00fd\u00f0ingu fyrir okkur \u00f6ll sem viljum lifa eftir gildum sem vil skiljum a\u00f0 r\u00e1\u00f0i hamingju okkar \u00ed sj\u00e1lfu l\u00edfshlaupinu. \u00dea\u00f0 er l\u00edka s\u00e9rstaklega \u00e1st\u00e6\u00f0a til a\u00f0 nefna \u00fe\u00e1tt sem a\u00f0 m\u00ednum d\u00f3mi er \u00f3a\u00f0skiljanlegur [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":0,"comment_status":"closed","ping_status":"closed","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"footnotes":""},"categories":[1],"tags":[],"class_list":["post-1067","post","type-post","status-publish","format-standard","hentry","category-uncategorized"],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1067","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=1067"}],"version-history":[{"count":1,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1067\/revisions"}],"predecessor-version":[{"id":1068,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/1067\/revisions\/1068"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=1067"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=1067"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/jonsteinar.is\/index.php\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=1067"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}